Alþýðublað Hafnarfjarðar - 18.12.1964, Síða 7

Alþýðublað Hafnarfjarðar - 18.12.1964, Síða 7
ALÞÝÐUBLAÐ HAFNARFJARÐAR 7 Vigdís Kl. Stefánsdóttir: Kjartan Hjálmarsson: & Jólasnjór Þegar veturinn gengur í garð, fer maður að eiga von á snjón- um. Fyrst sjáum við hæstu fjallahnjúkana setja upp hvítar fanna- hettur, svo fjöll og dali skrýðast hvítum kyrtlum. Mörgum leiðist fyrsti snjórinn. Hann vekur hjá þeim óhug og kvíða fyrir vetrinum, sem er að byrja, minnir þá á kulda og dauða. En flest óskurn við þó eftir jólasnjó. I mínum augum er náttúran yndisfögur, þegar tárhrein, nýfallin mjöll þekur jörð- ina, svo hvergi sér á dökkan díl. Það er eins og maður sjái í henni óskráðar minningar um sumarið sem leið. Maður sér í anda bjarta júnídaga auðuga af blómailm og fuglasöng, hljóð- lát rökkurljúf síðsumarkvöld, þegar máninn speglaðist í blá- dimmum vötnum. Og maður sér meira. Snjórinn er eins og hjúpur yfir öllu því fagra, sem vaknar af dvala næsta vor, öllum yndislegu blómunum, sem þá munu gleðja augað, og einnig þeim, sem aldrei munu spretta. Margt af því fegursta ,sem mennirnir hugsa, er aldrei skráð. það liggur hulið í sálunni, eins og fræin, sem verða að blómum næsta vor, eru hjúpuð vetrarmjöllinni. Allt það fegursta og háleitasta, sem mennina dreymir um, er fíngert, ósnotið og tárhreint eins og nýfallinn snjór — jólasnjór. Hafnfirzk jól Ég sé yfir bæinn og veit að breijtingin verður á viðmóti hans í kvöld. llraunatöglin sem teygja sig milli granna tíguleg, hörð og köld slaka álút á ijgglibrúnum, átthagans didarrúnum og bfóða jólunum skfól og skininu völd. Og Hamarinn gneypur hlustar á klukknaslögin, háttbundið álfalag. Og hlýfar af vinsemd hendur erfiðismanna, sem hraðfrystu aflann í dag, strfúka af álútum ygglibrúnum, átthagans dularrúnum lwersdagsins ok í glampa og gleðibrag. Höfnin og Lækurinn endurspegla undrið. upplýsta kvöldsins skin. Granna á milli greni-ilmurinn teygir grun um friðsaman vin, sem lyfti í gleði bænarbrúnum, bæfarins dularrúnum til Ijósanna himins við barnsins blikandi skin. Alþýðublað Haínaríjarðar óskar lesendum sínum gleðilegra jóla oq góðs komandi árs. * 'X V.K.F. FRAMTÍÐIN, Hafnarfirði, óskar öllum meðlimum sínum Gleðileg jól! gleðilegra jóla Gott og farsælt komandi ár. góðs og farsæls komandi árs. VERKAKVENNAFÉLAGIÐ FRAMTÍÐIN STARFSMANNAFÉLAG HAFNARFJARÐAR Hafnarfirði

x

Alþýðublað Hafnarfjarðar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublað Hafnarfjarðar
https://timarit.is/publication/411

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.