Alþýðublað Hafnarfjarðar - 18.12.1964, Side 10
10
ALÞÝÐUBLAÐ HAFNARFJARÐAR
Það hefur margt á dagana drifið í þessi 50
ár, síðan kirkja þessi var reist. Fjárhagslegir
örðugleikar hafa stundum blasað við, en úr
þeim hefur ævinlega rætzt, því að söfnuður-
inn hefur átt fórnfúsa menn og konur, sem
hafa oft lagt ríflega fram fé til styrktar kirkju
og söfnuði.
Miklar og fjárfrekar breytingar hafa farið
fram á kirkjuhúsinu á þessum árum. Arið 1931
var kór kirkjunnar endurbyggður og stækkað-
ur. Síðan hefur kirkjan, sem áður var þiljuð
að innan með panel, öll verið klædd með harð-
við og rafmagnshiti settur í hana — en áður
var hún hituð með kolaofni. Þá hefur forkirkj-
unni verið breytt mjög til bóta, en það varð
að gera til þess að hægt væri að koma fyrir
pípuorgeli, sem er hinn vandaðasti gripur. Og
loks á sl. ári hófust nokkrir menn og konur,
sem fermdir voru í kirkjunni fyrir 30 árum,
Söngflokkur kirkjunnar ásamt organista. Myndin var tek-
in sumarið 1963. Sitjandi: Marín Gísladóttir Neumann,
organisti. Fremri röð, talið frá vinstri: Jensína Egilsdóttir,
Guðrún Gísladóttir, Hulda Pétursdóttir, Gunnþórunn
Egilsdóttir, Jensína Gísladóttir, Björg Sveinsdóttir, Agústa
Einarsdóttir. Aftari röð: Elías Ivarsson, Yngvi 'Zofonías-
sOn, Sófus Bertelsen, Svanur Jónsson, Gísli Sigurgeirsson,
Sigurbjartur Loftsson, Jón Pétursson. (A myndina vantar
einn kórfélaga, Jón Þorbjörnsson.) Mijnd J>essi var tekin
skömmu ftjrir 50 ára afmæli fríkirkjunnar en söngflokkur-
inn gaf kirkjunni kyrtla f>á er hann er klæddur á mynd-
inni, og sem söngfólkið ber við allar atlxafnir er l>að syng-
ur í kirkjunni.
handa um að fá stóla í kirkjuna í stað bekkj-
anna, sem áður voru og þóttu alltaf óþægilegir
til að sitja á, og gáfu til þess mikið fé. I sam-
bandi við þessar breytingar var svo kirkjan
að innan máluð á sl. ári.
Allt þetta og margt fleira, sem ekki er hér
upp talið, hefur kostað mikið fé, svo að hundr-
uðum þúsunda skiptir, en allt þetta hefur
blessazt og greiðzt úr fjárhagslegum erfiðleik-
um með guðs hjálp og góðra manna, og þó að
dálitlar skuldir hvíli nú á söfnuðinum vegna
þessara rnörgu aðgerða, þá verða einhverjir
nú eins og áður til að rétta fjárhaginn við
með gjöfum og áheitum.
Innan safnaðarins er starfandi kvenfélag, og
hefur það starfað í tugi ára. Það er orðið
mikið fé, sem kvenfélagið er búið að leggja
til kirkjunnar á ýmsan hátt. Það hefur unnið
mjög að því að prýða kirkjuna að innan, teppa-
lagt gólf og kórinn, gefið altarisbúnað og
messuklæði, og fyrir nokkrum árum lét það
gera forkunnarfagran og vandaðan hökul.
Ég ætla mér ekki þá dul að telja upp það
allt, sem kvenfélag safnaðarins hefur gefið til
kirkjunnar, en það er mikið. Núverandi for-
maður er frú Matthildur Sigurðardóttir.
Þá er og starfandi Bræðrafélag innan safn-
aðarins og er sömu sögu um það að segja, að
það hefur styrkt safnaðarstarfsemina með
drjúgum fjárframlögum og svo hefur það beitt
sér fyrir því að lagfæra og prýða lóðina um-
lvverfis kirkjuna. Formaður bræðrafélagsins er
Þórður Þórðarson bæjarfulltrúi.
Minningarsjóður á vegum kirkjunnar var
stofnaður til minningar um frú Guðrúnu Ein-
arsdóttur, er lengi var formaður kvenfélagsins
og andaðist árið 1938. Hefur þessi sjóður oft
hlaupið undir bagga, þegar f járfrekar aðgerðir
hafa verið framkvæmdar, enda hafa safnaðar-
miðlimir munað sjóð þennan, þegar þeir hafa
Úr fríkirkjunni. — Ljósm.: Svavar Jóh.