Alþýðublað Hafnarfjarðar - 18.12.1964, Side 13
ALÞÝÐUBLAÐ HAFNARFJARÐAR
13
allir togararnir á síldveiðar og
þurftu ekki á neinum þjónustu-
brögðum að halda við trollin sín
a meðan. En á styrjaldarárunum
verður breyting á þessu. Fiski-
skortur á erlendum markaði veld-
ur því, að togararnir halda áfram
togveiðunum yfir sumartímann og
sigla með aflann. Og botnvarpan
brá ekki vana sínum og hélt áfram
að þarfnast handtaka kunnáttu-
manna. Árið 1948 líður, án þess
að nokkurt uppihald verði á neta-
verkstæðinu að Reykjavíkurvegi
25. Og sá hefur hátturinn orðið á
síðan.
Annríkið hefur þó verið mismun-
andi mikið á hinum ýmsu árstím-
um. Hefur það staðið í beinu sam-
bandi við það, á hvaða mið tog-
ararnir hafa sótt, hvernig botninn
hefur verið, sem togað var á. Verri
botn þýddi meira netaslit, og það
þykir kannski skrýtið, að því betri
sem aflabrögð togaranna eru, því
minni viðgerðir verða á vörpun-
um. Það kemur til af því, að fisk-
urinn lyftir vörpunni frá botnin-
um og rifnar hún þá síður.
Fyrir hálfu þriðja ári fór Úlfar
Haraldsson út til Þýzkalands og
Irlands og kynnti sér þar eftirlit
°g viðgerðir á gúmbjörgunarbát-
um. Síðan hefur hann haft með
höndum skoðun allra slika báta
bér í Hafnarfirði. Hver einasti
gúmbátur verður að skoðast ár-
Iega„ og munu þeir nú vera 50 til
60 í Hafnarfirði.
Starfsemi netagerðarinnar hefur
víða átt ítök í bænum. Með því á
eg við það, að töluvert af vinnu
hennar hefur farið fram á fjöl-
mörgum heimilum viðs vegar um
bæinn, uppi á Sólvangi, á Vífils-
stöðum og víðar. Fólk, sem af ýms-
Um ástæðum átti ekki heiman-
gengt, átti þess kost að fá að vinna
að netahnýtingu heima hjá sér.
hetta hefur orðið ýmsum heimilum
ómetanlegt og drjúgt búsílag. En
hitt er þó vafalaust miklu meira
virði, að mörgum manninum, sem
vegna sjúkleika eða annars gat
ekki stundað almenna vinnu, gafst
þarna oft á tíðum kostur á að sýna
bæði sjálfum sér og öðrum, að líka
hann gat verið til gagns og aflað
nokkurra tekna. Hún verður ekki
mæld, hamingjan, sem fylgir til-
finningunni að vera einhvers
megnugur.
Vistfólkið á Vífilsstöðum og Sól-
vangi hefur átt marga hamingju-
stund við netahnýtingar. Því hef-
ur gefizt kostur á að hnýta netin
þar heima, og hver og einn hefur
getað ráðið vinnutíma sínum dag
hvern og miðað hann við getu sína
og vinnuþol. Þannig unnu til dæm-
is einu sinni um 25 manns að neta-
hnýtingu að Vífilsstöðum.
Víst skal væna fiska veiða í netið traust.
Ljósm.: Svavar Jóh.
Auk þessara tveggja áður nefndu
staða er nú unnið á fjölmörgum
stöðum úti í bæ. Um 35 manns
hefur unnið hjá netagerðinni þeg-
ar mest var og mestur hluti þess
fólks hefur unnið að hnýtingu net-
anna heima. En alltaf er þó ann-
ríki á verkstæðinu að Reykjavíkur-
vegi 25, og liandfljótar og fingra-
fimar konur við netahnýtingu
munu áreiðanlega lengi enn gleðja
augu vegfarandans í Hafnarfjarð-
arvagninum.
Gleðileg jól!
Gott og farsælt komandi ár.
Jón Gísloson s.f.
Gleðileg jóll
Gott og farsælt komandi ár.
Þökkum viðskiptin á liðna árinu.
RAFVEITA HAFNARFJARÐAR
Gleðileg jól!
Gott og farsælt komandi ár.
Þökkum viðskiptin á liðna árinu.
OLÍUFÉLAGEÐ SKELJUNGUR H.F.
Strandgötu 25
Gleðileg jól!
Gott og farsælt komandi ár.
Þökkum viðskiptin á liðna árinu.
EFNAGERÐIN KALDÁ
Reykjavíkurvegi 68
Gleðileg jól!
Gott og farsælt komandi ár.
Þökkum viðskiptin á liðna árinu.
INGÓLFSHVOLL H.F.
Laugaveg 18 A