Alþýðublað Hafnarfjarðar - 18.12.1964, Side 32
32
ALÞYÐUBLAÐ HAFNARFJARÐAR
ræðalegan. Kallar hann til mín
hlýlega og spyr, hvort nokkuð ami
að mér. Einhverju hef ég víst ætl-
að að svara, en áður en mér tæk-
ist það, er hann kominn til mín
og segir jafn hlýlega og áður: „Ef
það er eitthvað sem þig langar að
spyrja mig um, þá skaltu óhrædd-
ur gera það.“ Loks gat ég stunið
því upp, að ég ætti svo erfitt með
að trúa því, að maðurinn hefði
getað lifað innan í hvalnum. Hann
lítur á mig og verður hugsi litla
stund, en segir svo um leið og
hann leggur lófann hægt á koll-
inn á mér: „Guði almáttugum er
enginn hlutur ómáttugur, væni
minn.“ Ekki ræddum við þetta
meira, en gengum út. Mér hlýnaði
við svar kennara míns, sem styrkti
þá veiku trú, sem byrjuð var að
festa rætur í hjarta mínu, og svari
hans gleymi ég aldrei og er hon-
um þakklátur æ síðan.
Bregzt þegar á
reynir.
Það var í útsynningsgarra dag
einn um vetur á fyrstu árum Millj-
ónafélagsins í Hafnarfirði, að upp-
skipunarbátur sleit sig lausan og
rak til lands. Var þá reynt að taka
á móti honum af nokkrum hraust-
um mönnum og að freista að verja
hann frá því að brotna,. unz und-
an honum fjaraði. Þetta gekk vel
í fyrstu, en brátt tók kuldinn í
sjónum að segja til sín. Þá var
brugðið á það ráð, sem aldrei
skyldi gert. Tveir voru kallaðir í
einu upp í pakkhús (geymsluhús)
og þeir hresstir á víni. Og er þeir
komu aftur, voru þeir eins og nýir
menn, glaðir og rjóðir, og óðu bros-
HAFNARFJARÐARBIO
SRGA STUDIO PRAE.SEMTERER
Freken Nitouche
S0DME , S30V OG CHARME DIRCH PASSER
LUINC HERTZ &
EBBE LRNGBERG*MflLENE SCHWARTZ'HRNS KURT ELSEMARIE * OVE SPROG0E * POULHAGEKI
ISCENESBT AF RNNELISE REENBERG
Jólamyndin
1964
(§leÖileg jót!
andi aftur út í kaldan og úfinn sjó-
inn. Þessu var haldið áfram, unz
einn var eftir, sem afþakkaði vin-
hressingu.
En eftir að hinir vínhresstu
menn voru búnir að vera nokkurn
tíma í köldum sjónum, fór brosið
og roðinn að smáhverfa af vöngum
þeirra og kuldinn að nísta þá aft-
ur, en á unga bindindismanninum
sást engin breyting. Og eftir nokk-
urn tíma gáfust allir hinir vín-
hresstu menn upp, en nýir komu
„Skipin á höfninni voru svo mörg,
að siglutrén voru næstum eins og
skágur
í staðinn, unz bátnum var borgið.
Aðeins einn af þeim, sem fyrstir
fóru út í sjóinn, hélt út til enda.
Það var bindindismaðurinn Jón
heitinn Einarsson verkstjóri, sem
um langa ævi var fyrirmynd ann-
arra og setti svip með miklum sóma
á fæðingarbæ sinn.
lólamynd BÆJARBÍÓS 1964
BB
XOLLIN
(Slottet)
Ný dönsk stórmynd í litum eftir skáldsögu Ib Henrik
Cavling. Sagan kom sem framhaldssaga í danska viku-
blaðinu „Hjemmet“.
IHLOTTK
Aðalhlutverk:
Malene Schwarts
Paul Reichhardt
Mynd, sem kemur allri fiölskyldunni
í sólskinsskap.
Gjteöiteg jót!