Heimilisvinurinn - 01.01.1906, Page 14

Heimilisvinurinn - 01.01.1906, Page 14
14 HEIMILISVINURINN Eptir langa mæðu tókst að lífga hann — og nú lá hann rúmfastur vikum og mánuðum saman. Það voru erfiðir dagar, sem í hönd fóru. Maðurinn minn gat nú ekkert unnið, þar við bætt- ist, að skipið, sem við áttum hlut i, brotnaði í spón í ofviðri, mennirnir björguðust við illan leik, en afli og veiðarfæri ekki, og var það stórtjón fyrir okkur, það mátti heita að þetta væri aleigan, og nú voru ástæður okkar ekki sem beztar. Jeg gat ekki gjört annað en hjúkra honum og hirða um húsið. Þegar kom fram á vorið, sýktist hann af ákafri lungnahimnubólgu, hann þjáðist mjög mikið, en bar þrautir sínar með einstakri stillingu, því furðaði jeg mig á, því hann var fremur van- stilltur að upplagi. Sumarið kom, en allt af versnaði útlitið fyrir okkur. Það fór að verða lítið um vistir hjá okkur. Jeg hugsaði einu sinni að jeg ætti marga og góða vini, sem mundu rjetta mjer hjálparhönd, ef jeg þyrfti með, en það brást mjer, Það voru ekki margir, sem litu inn til okkar eptir að þrauta- dagarnir byrjuðu. Stundum langaði mig til þess að einhver kæmi og tæki þátt í basli mínu með mjer, einhver sem tæki vingjarnlega í hendina á mjer og hughreysti mig, því að opt var jeg þreytt bæði á sál og líkama. Jeg sat ein allan daginn og hlustaði á sjúkdómsstunur mannsins míns, lækn- irinn var sá eini, er kom endrum og eins; við gatum ekki borgað honum eins og skyldi.

x

Heimilisvinurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisvinurinn
https://timarit.is/publication/419

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.