Heimilisvinurinn - 01.01.1906, Blaðsíða 42
4=
HEIMILISVINURINN
Þeim leið afarilla á leiðinni yfir sundið, af því
að þá skorti allar nauðsynjar. Margir af þrælun-
um vörpuðu sjer útbyrðis og drekktu sjer — bæði
af því að þeir kvöldust svo mikið á skipinu og
svo af því að þeir heyrðu að eyjarskeggjarnir
væru mannætur, sein þó var ósatt.
2. í þrældóini á Mailagaskar.
Eptir 5 daga ferð komu þeir til Madagaskar.
Þar var Kolomba seldur þrælakaupmanni, sem hjet
Ranapake. Húsbóndi hans kallaði hann Mahi-
hitse (hinn skynsami). Þar var Kolomba í 8 ár
og varð margt illt að þola, því að Ranapake var
mesta illmenni við þræla sína.
Eina nótt flýði Mahihitse með öðrum þræli,
sem nú er líka orðinn kristinn maður og heitir
Obeda. Þeir koniu til Ivera konungs í Menabé,
lengra suður í landinu; en hann seldi þá án vit-
undar þeirra Araba nokkrum, sem aptur seldi þá
frakkneskum manni, Leo Samat. rikasta kaup-
manninum á vesturströndinni. Hann ætlaði að
senda þá á opnu skipi eitthvað lengra suður með
ströndinni. Þeir voru þegar settir í þrælahlekki.
Vindurinn varð nú samt óhagstæður, formaðurinn
fyrir bátnum varð veikur og svo lágu þeir í bátn-
um í þrjú dægur.
Eina nótt, þegar varðmennirnir sváfu, þá gátu
þeir nað af sjer hlekkjunum. En svo varkárir
sem þeir voru, þá varð þeim þó á, að kasta verk-