Heimilisvinurinn - 01.01.1906, Blaðsíða 37

Heimilisvinurinn - 01.01.1906, Blaðsíða 37
HEIMILISVINTRINN 37 þú hættir ekki að prjedika" sag'ði faðir hans. „Jeg hef verið að skrifa erfðaskrána í mest-allan dag. Samkvæmt henni eiga öll auðæfi mín að lenda í höndum bróðursona minna, en —“. Hann þagn- aði snöggvast. — „Jeg er á öðru máli nú. Jeg hef heyrt þig prjedika, Georg. Ræða þín snerti hjarta mitt. Hjeðan af máttu prjedika, hvar og hvenær sem þú vilt. Guð blessi þig, barnið mitt“. Þannig mælti öldungurinn og þerraði tár af augum sínum. Vjer reynum ekki að lýsa tilfinn- ingum Georgs á þessari stundu. Drottinn hafði bænheyrt hann Sannleikurinn hafði sigrað hjarta föður hans. Faðir hans varð allur annar maður upp frá þessu. Hann opnaði hug og hjarta fyrir orði drottins, og það orð varð honum „kraptur guðs til sáluhjálpar". [G.L. pýddi]. Jósep. Æfisaga svertingja eptir R. L. Aas, norskan trúboðsprest á Madagaskar. 1. Bernska. Hann var borinn og barnfæddur í Austur- Afriku, 3—5 mílur upp frá Mosambik-sundinu. Faðir hans hjet Anarabía og móðir hans Ananicka.

x

Heimilisvinurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisvinurinn
https://timarit.is/publication/419

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.