Heimilisvinurinn - 01.01.1906, Síða 24

Heimilisvinurinn - 01.01.1906, Síða 24
*4 HEIMILISVINURINN var að spyrja þau út úr 2. grein trúarjátningarinn- ar —, að Pontíus Pílatus hefði verið — spíta, sem hefði verið negld ofan á krossinn(l) — og þóvarð hún næst þeirri cfstu við ferminguna.--------- Já, og Jói hjelt í vetur að Kristur hefði verið skírður á skírdag. Hann sagði líka allt af að hann hefði verið >kristnaður«, þegar hann fermdist, og var jeg þó búinn að hlæja nokkrum sinnum að honum fyrir það. Því að okkar prestur hafði opt sagt, eins og reyndar allir vissu, að börnin væru orðin kristin, undir eins og búið væri að skíra þau, skírnin væri upptaka í kristinn söfnuð, en ekki fermingin, og því væri algjört bögumæli að segja að menn >kristnuðust« við ferminguna. >En það þarf meira en skírn og fermingu til að verða sann- kristinn«, hafði hann bætt við einu sinni, þegar hann var að tala um þetta við okkur. — — Allt í einu varð jeg að hætta þessuin hugs- unum. Pabbi minn kallaði á mig, hann var að beizla hesta fyrir ofan tún. Hann skyldi þó ekki ætla að gefa mjernýjan hnakk? Það var ekki ómögulegt, að hann hefði flutt hann heim í laumi, og geymt hann einhvers- staðir í húsgarða. Gamli hnakkurinn var nú orð- inn 7 ára, og varla við mitt liæfi, að mjer fannst. Nei, það var þá eitthvað annað. »Góði minrt, hefurðu nú hugsað vel um heitin, sem þú átt að vinna i dag?«, sagði pabbi minn f

x

Heimilisvinurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisvinurinn
https://timarit.is/publication/419

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.