Heimilisvinurinn - 01.01.1906, Page 33

Heimilisvinurinn - 01.01.1906, Page 33
HEIMILISVINURINN 33 »Kæri faðir minn«, svaraði ungi maðurinn innilega hrærður, “jeg veit. hverju þú ætlar að bæta yið. Trúðu mjer, jeg hef lengi búizt við þessu, en jörðin er drottins og allt sem á henni er«. Faðir hans tók fram í fyrir honum og sagði með gremjuróm: „Það er þó alt mín eign á með- anÖJeg Hfi. Jeg hef leyfi til að gefa það hverjum Um sem mjer sýnist, og þó þú sjert sonur minn, þá skaltu aldrei erfa — — —“. Hann lauk aldrei við setninguna, því kona hans stóð upp, gekk til hans, lagði hönd sína á öxl hans og sagði með myndugleik í rödd og svip: „Hinrik, hættu nú, jeg banna þjer að tala þessi orð, ef þú vilt ekki reka mig einnig burtu úr húsi þínu. Georg er mitt barn ekki síður en þitt". „Nú jæja, Margrjet“, sagði maður hennar í ellu þýðari málrómi, „við erum nú búin að lifa saman í friði og eindrægni í 30 ár, jeg skal ekki segja neitt frekar um þetta, fyrst þú vilt það ekki, en þetta er nú allt eins og það er, og jeg stend við orðin, sem jeg hef talað. Skilurðu þaðf" bætti hann við og leit a son sinn með reiðilegum svip. Að svo mæltu gekk hann út. Stundu síðar var Georg a leið til þorps eins, er var hjer um bil fjórðungs mílu vegar frá heim- ili hans. Hann var fölleitur og dapur í bragði. Honum varð hughægra og hjarta hans endur- nærðist, er hann hafði svalað sjer í bæn til guðs. Hann hraðaði göngu sinni og von bráðar var

x

Heimilisvinurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisvinurinn
https://timarit.is/publication/419

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.