Heimilisvinurinn - 01.01.1906, Qupperneq 36

Heimilisvinurinn - 01.01.1906, Qupperneq 36
3‘ HEIMILISVINURINN Hann ætlaði að tala við foreldra sína, áður en hann gengi til hvíldar, en fyrst gekk hann inn í herbergi sitt til þess að tala við drottin í næði. Hann opnaði biblíuna sína. Yndislega fögur fyr- irheit urðu fyrir honum. Hann las þau og sál hans endurnærðist. Svo beygði hann knje fyrir lávarði sínum og drottni og bað og þakkaði, bað einnig fyrir foreldrum sínum. Hann var ekki staðinn upp frá bæn sinni, þegar drepið var hægt á dyr hans og hann var beðinn að koma inn til föður síns. er vildi tala við hann. Nokkrum augnablikum síðar gekk Georg inn í herbergi föður sfns. Móðir hans var einnig þar inni. Bæði voru þau augsýnilega mjög hrærð. „Fáðu þjer stól, Georg", sagði faðir hans í vingjarnlegri róm, en Georg hafði búizt við, „þú ert víst ekki búinn að gleyma því, sem jeg talaði við þig í morgun, og þú veizt, að jeg stend æ- tíð við orð mín“. „Jeg er reiðubúinn til að hlýða þjer í öllu því, sem ekki er gagnstætt vilja rníns himneska föður, og jeg skal, ef þú skipar svo, fara hjeðan strax á morgun — yfirgefa æskuheimili mitt. En pabbi — mamma — eigum við að skilja ósátt?" Georg gat ekki sagt meira. Hann átti nú að skilja við foreldra sína að fullu og öllu. Það fjekk ósegjanlegu mikið á hann. Móðir hans reis úr sæti sínu og ætlaði að faðma hann að sjer. „Jeg hótaði því, að gjöra þig arflausan, ef

x

Heimilisvinurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisvinurinn
https://timarit.is/publication/419

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.