Heimilisvinurinn - 01.01.1906, Síða 38

Heimilisvinurinn - 01.01.1906, Síða 38
38 HEIMILISVINURINN Þau voru heiðingjar og þekktu ekki hinn eina sanna guð. Einu sinni var þar haldin umskurnarveizla míkil; þangað fóru margir húsfeður með börn sín, til umskurnar. — Þessi veizla stóð 3—4 mílur frá heimili hans. Elzti bróðir hans vildi líka fara, en faðir lians aftók það með öllu, að hann færi þangað. En þrátt fyrir bann föður síns, laumað- ist hann með öðrum dreng af stað. En á leiðinni voru þeir teknir af ræningjum. Foreldrar hans gjörðu margar atrennur að því, að fa elzta sinn lausan aptur; ræningjarnir vildu ekki sleppa honum. En elzta son sinn vildu foreldrarnir fyrir engan mun missa, „því hann á“, sögðu þau „að sjá um útför okkar, þegar við deyjum og færa goðunum fórnir fyrir okkar hönd. Þess vegna gjörðu þau ræningjunum boð, hvað eptir annað; en það var árangurslaust. Þa hug- kvæmdist móðurinni, að það myndi vera betra, að láta eitthvað af yngri börnunum fara. Föðurn- um gatst vel að þeirri uppástungu og svo sendir hann ræningjunum orð og biður þá að hafa skipti á þessuni syni sínum og öðrum yngri. Og lofuðu þeir þvi. Foreldrarnir vildu lata Jósep, sem þá hjet Kolomba — ganga í stað bróður sins; en enginn vildi verða til að fara með hann til ræningjanna. Foreldrarnir sendu hann þá til ömmu hans, sem bjó skammt þaðan; og hún sendi hann samdægurs

x

Heimilisvinurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisvinurinn
https://timarit.is/publication/419

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.