Heimilisblaðið - 01.01.1955, Qupperneq 6
að byggja þar stóra, hring-
myndaða girðingu úr þurrum
þyrnigreinum og grafa kring-
um hana djúpan skurð með
grjóti einu og berum höndun-
um. Fáeinir varðmenn eru
skildir eftir til að gæta þeirra,
en hinir þrælaveiðimennirnir
halda af stað til nýrra mann-
rána.
Þegar um það bil 500 slík-
um vesalingum hefur verið
safnað saman, eru þeir hlekkj-
aðir saman á höndum og um
mitti, fjórir í hóp, og þá hefst
gangan í austurátt í glóandi
sólarhita og nístandi nætur-
kulda eyðimerkurinnar. Lestin
heldur áfram vikum saman,
berfætt og oft tötrum einum
klædd. Órmagnist einhver
fanganna, er hann losaður úr
fjötrunum og skilinn eftir.
Sjakalar og gammar bíða
hans . . .
Ein byssa fyrir þrjár konur.
Eftir nokkrar vikur birtast
fjöll við sjóndeildarhringinn.
Það eru Tíbestí-fjöllin við suð-
urlandamæri Líbýu. Þangað
koma sams konar lestir sunn-
an að, frá Eritreu, Sómalílandi
og Brezku Uganda.
Þar er viðskiptastaðurinn
fyrir „svarta fílabeinið", eins
og þrælarnir eru nefndir á hinu
litauðga máli Austurlandabúa.
Enn eru reistar stórar fanga-
girðingar. Njósnarar ríða dög-
um saman í allar áttir, til þess
að vera á verði gegn óþægi-
legum heimsóknum. Kaup-
menn frá Saudi-Arabíu og
Hadramaut taka við veiðinni.
Mannhjörðinni er skipt misk-
unnarlaust niður eftir aldri,
fegurð og líkamsþrótti. Við-
skiptamennirnir eyða ekki
löngum tíma í að prútta eða
semja um kaupin. Skiptigjald-
ið er fastákveðið: ein byssa
fyrir þrjár konur, einn skot-
færakassi fyrir tvo karlmenn
upp að fjörutíu ára aldri, einn
hnífur eða byssustingur fyrir
soltið barn. Nokkuð af vopn-
um þessum er komið af birgð-
um þýzku Afríkuherdeildar-
innar, og hafa Bedúínar frá
Líbýu safnað þeim saman í
eyðimörkinni.
Nú leggur lestin af stað til
Nílar undir nýrri stjórn. Þegar
komið er yfir ána, er verzl-
unarvaran flutt á vörubílum
niður á strönd Rauðahafsins.
Litlir vélbátar og arabiskar
seglskútur smygla svarta fólk-
inu að næturlagi fram hjá lög-
regluvörðum Englendinga yfir
á strönd Arabíu. Nokkur hluti
þrælanna er fluttur beint á
þrælamarkaðina í Suður-Ar-
abíu, en allmargir eru samt
fluttir um höfnina í Dsjidda
til Mekka.
Þar, í hinni heilögu borg
Múhameðstrúarmanna, hitta
þrælarnir fyrir sér pílagríma-
hópa frá öllum löndum Mú-
hameðstrúarmanna. Trú þeirra
skipar pílagrímunum að losa
sig við öll jarðnesk gæði í
Mekka. Og þar sem spámað-
urinn Múhameð hefur heitið
því, að hver sá, sem gefi þræli
frelsi, bjargi líkama sínum úr
eldi helvítis, kaupa margir píla-
grímar þræla og láta þá síðan
lausa. En leysingjarnir hafa
engin not af frelsi sínu, þar
sem þeir eru staddir mörg þús-
und kílómetra frá ættlandi sínu
og þeim bjóðast engin bjarg-
ráð. Þeir safnast því í hóp
þeirra, sem sömu örlög hafa
hlotið, og eru svo seldir á nýj-
an leik, án þess að kaupmenn-
irnir sjái nokkuð athugavert
við það.
Tvisvar í viku koma þeir,
sem þræla vilja kaupa, sam-
an á þrælamörkuðunum í
Yashpim, Sione og Mukallah
og skoða þrælana, sem þar eru
boðnir til sölu. Stúlkur, milli
ellefu og fjórtán ára, eru eftir-
sóttasta varan. Forríkir sheik-
ar, sem eiga heima í olíuhér-
uðunum inni í landinu, senda
þangað umboðsmenn sína til
innkaupa. Þeir vita nákvæm-
lega, hvað húsbændur þeirra
girnast í kvennabúr sín. Þeir
bjóða allt að 200 Maríu-Ter-
esíudölum (h. u. b. 2 345,00 ísl.
kr.) fyrir fallega vaxna stúlku.
Stúlkur þessar eru síðan ald-
ar upp í sérstökum skólum, þar
sem þeim eru kenndar listir
hóglífis og ásta, og þá kunn-
áttu sína eiga þær síðar að
nota til að gera framtíðarhús-
bændum sínum lífið ljúfara.
Erfiðara verður hlutskipti
eldri kvennanna, sem aðeins
eru metnar eftir vinnuþrótti
sínum. Fyrir þær eru greidd-
ar h. u. b. 275,00 ísl. kr., en
karlþrælar eru seldir á kr.
390—585,00 og fer verðið eft-
ir líkamshreysti og verklagni.
Þeir eru síðan látnir gegna
störfum sem þjónar, verka-
menn, lífverðir eða hermenn.
Fjallháir hlaðar af skýrslum.
f glerhöll Sameinuðu þjóð-
anna við East River í New
York dást þúsundir manna
daglega að skjali, sem kallast
hinu mikilfenglega nafni
„Mannréttindaskrá". I henni
er hverjum einasta manni
tryggt óskerðanlegt og óafsal-
anlegt frelsi, hvort sem hör-
[4]
HEIMILISBLAÐ IÐ