Heimilisblaðið - 01.01.1955, Blaðsíða 21
lætur einhvem óþokka, sem
er að reyna að eyðileggja verk
okkar hér, hafa hann.
- Herra Claessen, svaraði
Leda skjálfandi, þessi óþokki
er faðir minn. En hvernig
hann hefur getað komizt inn,
hef ég ekki minnstu hugmynd
um. Ég sá hann aðeins læðast
hingað um hádegið í gær, með-
an þið voruð að borða. Ég veit
ekki, hvað hann hefur gert af
sér, en það sem ég ætlaði að
segja, var það, að ég fer að
heiman í dag. Ég þoli ekki að
vita og — sjá . . .
Hún sneri sér frá honum og
ætlaði að fara. Claessen greip
í hana og hélt henni fastri.
Hann laut niður að henni og
kyssti hana.
- Hvað er þetta? hrópaði hún
nokkrum mínútum seinna. Það
er einhver uppi í tuminum.
- Það eru líklega einhver ný
óþokkabrögð, muldraði Claes-
sen. En Rasmus á að vera þar.
Bíddu eftir mér hérna.
Leda stóð hreyfingarlaus,
meðan hann klifraði upp.
Hræðilegum grun laust niður
hjá henni.
Þegar Claessen kom að
staðnum, þar sem spjöllin
höfðu verið framin, sá hann
syn, er olli honum svima. Son-
Ur hans lá þar klemmdur milli
^veggja planka. Hann hreyfð-
ist ekki. Hversu smávægileg
hreyfing sem var hlaut að
sporðreisa plankana.
Claessen náði sér í kaðal í
dauðans ofboði. Með óendan-
legri varkárni og þolinmæði
tókst honum að binda kaðlin-
um utan um meðvitundarlaus-
an Piltinn. Þegar hann hafði
fest kaðlinum vandlega, opnaði
Rasmus augim. Hann starði al-
heimilisblaðið
gerlega utan við sig á föður
sinn.
Það liðu ekki nema örfá
augnablik, þangað til lærling-
urinn og sveinninn komu hon-
um til aðstoðar við að koma
piltinum á öruggan stað. Claes-
sen tók son sinn varlega í fang-
ið og bar hann niður á jörð.
Lærlingurinn hljóp af stað eft-
ir lækni.
Þegar Claessen kom niður,
varð hann algerlega magn-
þrota, kaldur sviti spratt út um
hann allan, og hann varð ná-
fölur í framan.
- Er hann lifandi? hvíslaði
Leda.
- Ég fann hjartað slá, þegar
ég bar hann niður, en hann
getur verið meiddur innvortis.
Rasmus opnaði augun. Hann
leit undrandi á föður sinn og
síðan á Ledu.
Nú gat Leda ekki stillt sig
lengur, hún kastaði sér yfir
Rasmus og þakti andlit hans
með kossum.
- Elsku Rasmus, ég var
nærri því orðin brjáluð af
hræðslu um þig.
- Þú — elskar hann, hvísl-
aði Rasmus og leit á föður sinn.
- Hvers virði er hann á móts
við þig! hrópaði Leda.
Claessen brosti hamingju-
samur og gekk út á dómkirkju-
torgið, til að svipast um eftir
lækninum.
Að gefnu tilefni.
ViS flísina mér illa er,
— eins og fleiri konum, —
en ég gamla bjálkann ber
betur öllum vonum.
GuSrún GwSmundsd.
[19]
Ungur listmálari.
Evelyn Rowland heitir þessi nítján
ára málari. Hún er fædd í Kína, en
hefur alizt upp hjá foreldrum sín-
um í Burma. Nú á hún heima í
Englandi. — Evelyn finnst bezt að
vinna í baðkeri. Hún hefur hug á
að fara í bíl um eyðimörkina Sahara
til þess að mála. En það er ótrúlegt
að hún geti haft baðkerið með sér.
Þráðanet.
í Frakklandi hefur verið fram-
leitt nokkurs konar þráðanet, sem
klæðskerar nota við fatasaum.
Þræðirnir eru gerðir úr plasti, sem
hefur þann eiginleika að togna við
rafmagnsstraum, en harðna síðan.
Þannig er auðvelt fyrir klæðskera
að fá nákvæma eftirmynd viðskipta-
vinanna, svo að þeir þurfa ekki að
ómaka sig til þess að máta.