Heimilisblaðið - 01.01.1955, Page 35
dyra. Það var hryggðarsvipur
á gömlu andliti hennar, og hún
spurði hann spurningarinnar,
sem hann var alls staðar
spurður:
- Hvernig líður Murdoch
lsekni í dag?
Hann sagði, umhugsunar-
laust:
- Eins vel og hægt er að bú-
ast við.
- Segið mér í hreinskilni,
doktor. Haldið þér að honum
muni batna?
Það var eitthvað í rödd og
framkomu konunnar, sem kom
i veg fyrir það, að hann svar-
aði, eins og hann var vanur
að gera.
- Nei, það held ég ekki!
Hún kinkaði hugsandi kolli.
- Það — það er víst líka
bezt — það er álit flestra.
- Já, ég hef gert það, sem
í rnínu valdi hefur staðið. Það
veit hamingjan, sagði Duncan
úrræðalaus.
* Já, það vita allir. Þér haf-
ið reynzt afbragðsvel, læknir.
Á meðan hann ók í gegnum
bæinn, heyrði hann stöðugt
fyrir eyrum sér viðurkenning-
arorð konunnar. Þau vöktu hjá
úonum traust og hlýju og
sendu ljósbjarma inn í örvænt-
ingarfullan og þjakaðan huga
hans.
J^lukkan var um eitt, þeg-
ar hann kom heim. Fyrir
utan læknishúsið beið stór
leigubíU. Hann beit á jaxlinn.
Hann vissi, hvað þetta merkti,
vissi það, áður en hann hitti
Önnu inni í litlu tilraunastof-
unni. Hún sat þar og reykti
vindling, til þess að drepa tím-
ann.
HEIMILISBLAÐIÐ
- Eruð þér komin, Anna?
sagði hann rólegri röddu. Mér
finnst, að þér hefðuð átt að
skilja, að ég kærði mig ekki
um, að þér kæmuð. Ég hélt, að
yður væri það ljóst eftir allar
símahringingarnar og skeytin.
- Já, símskeyti, sem þér
svöruðuð ekki! Og símahring-
ingar, sem þér létuzt ekki
heyra! Hún drap í vindlingn-
um í öskubakkanum með
snöggum hreyfingum. Mundi
það þá ekki liggja í augum
uppi, að ég á ekki annars úr-
kostar en að ræða við yður
undir fjögur augu?
Hann yppti öxlum og gekk
að litla lyfjaskápnum í horn-
inu. Hann tók þar út nokkur
glös og fór að blanda ódýr lyf,
sem hann hafði ákveðið handa
sjúklingum sínum þá um morg-
uninn. En þegar hún sá hann
þarna fyrir sér, missti hún alla
stjórn á sér.
- Dunean! hrópaði hún. Eruð
þér orðinn geðveikur? Stand-
ið þér við að hella saman lit-
uðu vatni í þessum tréskúr,
þegar þér getið unnið á yðar
eigin rannsóknarstofu?
- Það er nokkuð í þessu lit-
aða vatni, sem þér vitið ekki
um.
- Hvað skyldi það vera?
skaut hún inn í.
- Traust, svaraði hann ró-
lega.
Hún starði á hann með fyr-
irlitningarsvip.
- Þér hafið tapað vitinu! Þér
eyðileggið álit yðar með því
að selja fólki slík lyf.
- Já, ef til vill, sagði hann.
En ég stunda annan sjúkling.
Hann liggur hér fyrir ofan.
- Já, ég veit það. Ég hef
skoðað hann. Já, þér þurfið
[33]
Ánaegðir neytendur.
Hér sjást lítil systkini. Þeim hef-
ur verið gefið súkkulaði og njóta þau
þess greinilega af mikilli ánægju.
Forsetinn þakkar.
Argentínski hnefaleikarinn, Pas-
cual Peres, kom nýlega heim til
lands síns eftir að hafa unnið heims-
meistaratitilinn í hnefaleik í Japan.
Fjöldi manns tók á móti honum á
flugvellinum með Peron forseta í
fararbroddi. Forsetinn faðmaði
hnefaleikarann innilega að sér í
þakklætisskyni fyrir að færa land-
inu í fyrsta skipti heimsmeistara-
titil í hnefaleik.