Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.12.1963, Qupperneq 11

Heimilisblaðið - 01.12.1963, Qupperneq 11
1 Smásaga eftir C. B. Detla. „Það er brjálæði, öldungis óðs manns æði að kasta svo miklum peningum í slíkt.“ Jonas Stryg forstjóri gekk aftur og fram um dagstofugólfið og púaði vindilinn sinn æfur af reiði. „Má ég spyrja — “ Frú Stryg leit upp frá skrifpúlti sínu. Það var þakið árituð- um boðskortum, og önnur slík kort, sem enn voru óskrifuð, stóðu í bunka við hlið- ina á hinum. „Viðhefurðu orðið slíkt um brúðkaup sjálfrar dóttur þinnar?“ „Ég segi, að það sé tilgangslaust, full- komlega heimskulegt og með öllu óforsvar- anlegt, að fleygja fimmtán eða tuttugu þúsundum út fyrir eina einustu matar- veizlu, bara vegna þess að ...“ „Bara vegna þess að einkadóttir þín er að ganga í heilagt hjónaband í fyrsta — og vonandi síðasta — sinn. Auk þess sem þú ferð með ýkjur. Hvernig ætti þetta að fara upp í tuttugu þúsund?“ Jonas Stryg nam staðar, tók upp vasa- bókina sína, fletti í henni og las upphátt: »>Hundrað tuttugu og fimm málsverðir á hundrað og tíu krónur hver gerir þrettán búsund sjö hundruð og fimmtíu krónur. Þetta er fyrir matinn einan og vínið með honum. Þá er alls ekki talinn með kokk- teillinn. Hundrað tuttugu og fimm kokkteil- ar á þrjár krónur hver gerir þrjú hundruð sjötíu og fimm krónur. Þá er ótalinn hljóð- íærasláttur undir borðum. Hljómsveit Éreddys kostar um klukkutímann hvorki nieira né minna en ...“ >>Æ, hlífðu mér, hlífðu mér.“ Frú Stryg stakk fingrunum upp í eyrun. „Eða ætl- ai'ðu kannski líka að telja upp, hvað fata- Seymslan kostar, eða hvað?“ >»Ja, því ekki það? Það fylgist allt að. á hka eftir að reikna sígaretturnar og vindlana. Þetta verður aldrei undir átján Púsundum með þjórfé. Og það á þessum tímum...“ Érú Stryg sneri sér aftur að boðskort- unum, hin rólegasta. Hr. og frú Stryg bidja yður að... „Þú veizt ofur vel,“ sagði hún, „að við komumst ekki hjá þessu. Lísa verður að fá sómasamlega giftingu. Eða hvað heldurðu ekki, að Jemmer hafi mátt leggja út við brúðkaup dóttur sinnar! Þar var hálft annað hundrað boðsgesta, en fjöl- skyldan er líka óvenju stór. Og silfurbrúð- kaup Gansels-hjónanna, eitthvað hefur það kostað! Maður kemst ekki hjá kostnaðin- um, ef það á að fara vel úr hendi. Hugsaðu þér líka, hvað þetta er mikil auglýsing fyrir fyrirtækið þitt. Það verður talað um veizluna í blöðunum. Það verða birtar myndir úr henni á baksíðum þeirra. Ég fullvissa þig um, að sá kostnaður á eftir að bera margfaldan ávöxt.“ „Ja, svei!“ gegndi Stryg forstjóri. „Hvað ætli maður fái svo sem í aðra hönd, ef maður horfir raunsætt á hlutina? Tengda- son, sem ekki getur séð fyrir konu sinni. Ég verð að punga út með að minnsta kosti fimm þúsund á ári, ef þau eiga að skrimta — ef það þá hrekkur til, sem það gerir víst varla, ef ég þekki dóttur mína rétt. Já, það er aldeilis margfaldur ávöxtur, eða hitt þó heldur!“ Frú Stryg leit upp og mælti í hátíðleg- um tóni, sem hún var vön að bregða upp við fermingar og önnur slík tækifæri: „En hefur ástin þá ekkert að segja? Á í raun og veru að meta allt til peninga ? Hugsarðu ekki um tilfinningar barnsins? Hamingju tveggja ungmenna ...“ „Æ, góða vertu ekki að þessu!“ Jonas Stryg staðnæmdist og stóð allgleitt, um leið og hann virti fyrir sér vindilstúfinn, sem hann hélt á. „Hvað ætti að vera því til fyrirstöðu, að þau gætu elskazt, þrátt fyrir allt og allt? Þarf nauðsynlega að sanka saman hundrað og fimmtíu manns og háma í sig sjö eða átta rétti, vegna þess að tvö ungmenni ætla að fara að búa undir sama þaki? Hvað á allur slíkur fyrirgang- ur að þýða ...?“ „Jonas! Hvernig er það eiginlega sem þú talar um hjónabandið?“ Rödd frúar- innar skalf. „Þú ert karlmaður, Jonas,“ bætti hún við í spaklegum tón, „og þú skil- ur ekki, hvílíka þýðingu það hefur fyrir unga stúlku, að upphafið á hjúskap hennar ^Eimilisblaðið 231

x

Heimilisblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.