Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.12.1963, Side 36

Heimilisblaðið - 01.12.1963, Side 36
Læknirinn varð aftur hugsi, en svaraði svo brosandi: „Jú, ég gæti ábyrgzt það.“ „Ágætt! Þá legg ég fyrir yður áform mitt.“ Henry þagði andartak og hugsaði sitt mál. Hann vissi, að hann varð að forðast margar gildrur. „Fyrir hálfum mánuði hafði ég ekki séð ungfrú Kerlon,“ sagði hann, „en viku síðar var ég kominn í hringiðu spennandi við- burða og hafði aðeins eitt markmið í huga, sem sé að hjálpa ungfrú Kerlon til að kom- ast yfir réttmætan arf, þrátt fyrir áætl- anir yðar um að koma í veg fyrir það. En nú eru aðstæður breyttar. Nú hef ég annað markmið í huga, og því hljóta peningarnir að hafa minna gildi. Ég hugsa fyrst og fremst um stúlkuna ungfrú Kerlon, en læt erfingjann lönd og leið. Hún verður mér sjálfsagt ekki þakklát fyrir að tarna, en við því er ekkert að gera. Andleg og lík- amleg heilsa hennar og frelsi hennar einn- ig hafa óendanlega þýðingu fyrir mig, en auður eða fátækt hafa ekkert að segja.“ Læknirinn kinkaði kolli og virtist skilja þetta vel, en Henry hélt áfram: „Eins og þér létuð á yður skilja um dag- inn og ég einnig hef gefið í skyn, þá er ég alls ekki á flæðiskeri staddur efnalega. Auðvitað get ég ekki kallazt ríkur borið saman við auð hins látna frænda ungfrú Kerlons. Slikur auður er óþekkt fyrirbrigði í Danmörku. En ég held, að tvær mann- eskjur geti lifað sómasamlega af vöxtun- um af auði, sem væri tíundi hluti af arfin- um eftir ríka frændann. Þá er ekki reikn- að með því, að ég gæti unnið fyrir ein- tiverju. Ég segi yður frá fjárhag mínum, af því að þér eruð fjárhaldsmaður ungfrú Kerlon. Áform mitt er sem sé í því fólgið, að ég gangi að eiga hana fyrir klukkan sjö í kvöld!“ „Sjáum til!“ sagði læknirinn, að því er virtist mjög ánægður. „Þetta væri ágæt lausn á vandamálinu, en hvers vegna hafið þér ekki sagt þetta fyrr, t. d. þegar ég gaf yður bendingar í þá átt? Hvers vegna bið- uð þér með uppgjöf í þessu máli, þangað til þér voruð orðinn frjáls maður að nýju?“ Sem betur fór var Henry viðbúinn að svara þessari viðbáru. „Það er einfalt mál! Til þess gafst ekk- ert tilefni fyrr, því að ég skildi ekki, hve alvarlegt ástand ungfrú Kerlon var, fyrr en ég sá hana í klefanum í gærmorgun. Ég skildi það þá, að frelsi hennar og hamingja var í raun og veru það eina, sem skipti máli fyrir mig. Þegar ég kom til sjálfs mín eftir þetta heimskulega yfirlið mitt, þá voruð þér farinn. Ég ákvað þá að gefast upp og skýra yður frá því, þegar þér kæmuð aftur. En atvikin höguðu því þannig, að ég gat flúið, og ég get fullvissað yður um það, að ég hef notað vel tímann, síðan ég hlaut frelsi.“ „Einmitt það! Hvernig þá?“ spurði læknirinn. „Eins og hér má sjá,“ svaraði Henry og dró aflangt umslag upp úr vasanum. „Vin- ur minn Monier notaði gærdaginn til að útvega nauðsynleg gögn vegna giftingar, og þau eru hér. Ég og ungfrú Kerlon get- um gengið í hjónaband, hvar sem er og hjá hvaða fógeta sem er. Og eins Og ég sagði, þá sting ég upp á því, að hjónavígsl- an fari fram í kvöld. Þar sem hún hefur ekki náð lögaldri í kvöld, þá kemur hjóna- bandið í veg fyrir það í eitt skipti fyrir öll, að hún geri kröfu til fjármuna frænda síns. Þetta er einmitt það, sem þér viljið. Ég get ekki séð, að þér getið haft neitt á móti þessu eða hvað?“ „Alls ekki! Mér finnst þetta hreinasta afbragð," sagði læknirinn. Henry varð feg- inn þessum undirtektum. „En gleymið þér ekki einu? Hjónaband er eins og rifrildi. Það þarf tvo til að koma því af stað.“ Henry hló. „Ég vona það verði ekki rifr- ildi hvað mig snertir! En ég skil, hvað þér eigið við, og því spurði ég yður ein- mitt, hversu fljótt þér gætuð komið ung- frú Kerlon í eðlilegt ástand. Ég bið yður að gera það nú þegar, svo að ég geti beðið um samþykki hennar.“ „Og hvað væri hægt að gera, ef hún neitaði?“ spurði læknirinn hugsi. „En yður er kannski kunnugt um það af einhverjum ástæðum, hvert svar hennar verður?" „Ó, nei,“ svaraði Henry einlæglega. „Ég hef aðeins vonir eða áræði, ef þér viljið heldur nefna það svo.“ Læknirinn brosti elskulega. 256 HEIMILISBLAÐIÐ

x

Heimilisblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.