Heimilisblaðið - 01.09.1968, Side 6
plágum, sem þjaka Hellas, eru aflraunamenn-
irnir sú versta' ‘.
Bftir að Rómverjar höfðu lagt Grikkland
undir sig, létu þeir leikana stöðugt fara fram,
en þeir voru afnumdir árið 939 af Theódósó-
usi I af Byzans, kristnum drottnara, sem von-
aðist til þess að geta „rutt um koll hinum
heiðnu musterum um allan heim“. Kristnir
menn á staðnum af lægri stéttum fullkomn-
uðu ætlunarverkið, með aðstoð nokkurra jarð-
skjálfta, og Olympía hvarf í meira en þús-
und ár.
Fyrir nálega tvö liundruð árum fannst
staðurinn aftur, en var þá mýrarköldumeng-
uð dæld, full af vatni. Árið 1875 gerðu Þjóð-
verjar samning við grísku stjórnina, sem veitti
þeim einkarétt á uppgreftri Ólympíu. Á sex
árum tókst þýzku fornleifafræðingunum
miklu, Ernst Curtius og Priedrich Adler að
leiða í ljós leifar af musteri, sem voru grafn-
ar undir fimm metra þykku lagi af leðju og
drógu fram í dagsljósið fjársjóði eins og
Hermesarstyttu Praxitelesar, eina af fegurstu
höggmyndum, sem nokkurn tíma hafa verið
gerðar. Þær fundust nákvæmlega á þeim stað,
þar sem gríski rithöfundurinn Pausanias ■—
Baedeker síns tíma •— sagðist hafa séð þær
árið 174 e. kr.
Ólympía okkar daga er staður með fögr-
um rústum, blómum vöxnum. Perðamenn ineð
myndavélar um hálsinn, sem heimsækja þær,
geta séð gríska verkamenn gera skurði inn
í brekkurnar umhverfis íþróttavöllinn, eg enn
einu sinni er unnið undir leiðsögn þýzkra
fornleifafræðinga. Það er seinlegt og rann-
sóknarstarf, sem krefst mikillar nákvæmni,
en stundum ber svo við, að eitthvað alveg
einstætt kemur fram í dagsljósið: fræðandi
áletrun á fótstalli, fallegur lítill hestur úr
eirblendingi, eða eitthvert brot af dýrð horf-
inna tíma, sem hlýtur að fylla nútímann lotn-
ingu gagnvart mikilleik hins gríska anda og
tryggð hans við erfðavenjurnar, sem komn
Ólympíuleikunum af stað.
íslendingarnir, sem nú taka þátt í leik-
unum eru: Óskar Sigurpálsson, Guðmund-
ur Hermannsson, Jón Þ. Ólafsson, Bllen
Ingvadóttir, Björn Yilmundarson, farar-
stjóri, Hrafnhildur Guðmundsdóttir, Leilmir
Jónsson, Siggeir Siggeirsson, þjálfari, Val-
björn Þorláksson og Guðmundur Gíslason.
í sumar tókst Bandaríkjamanninum
Bob Seagreen .aö setja nýtt lieims--
met í stangarstökki, þaö er 5,41 m.
Láttu mig vita ef það kemur
mús.
Með allt að 60 km. hraða þýtur sj^'
skíðafólkið á haffletinum.
182
HEIMILISBLAhl5