Heimilisblaðið - 01.09.1968, Page 36
Sykurinn er soðinn í ofurlitlu vatni, þar til
hann er svo þykkur að hann kraumar. Þá er
saftinni hlandað saman við og soðið við hæg-
an hita í 5 mín. Komi froða er hún veidd
vandlega ofan af. Iílaupið er gott þegar það
lekur í löngum dropum af matskeið. Sé það
ekki svo þyklct er það látið standa um stund
á volgum stað, en má ekki sjóða. Látið í litlar
krukkur og bundið yfir þær strax.
Sólber.
Sólberjasúpa
% kg sólber
3 1 vatn
200 gr sykur
45 gr sagómjöl
Berin eru hreinsuð og soðin í vatninu í %
klst., og síðan sigtað. Þá hitað aftur og sykur
settur í eftir geðþótta. Mjölið hrært út í köldu
vatni og þegar súpan sýður er jafningnum
hrært út í og soðið í 2 mín. Borðað með tví-
bökum.
Sólberjamauk.
Vu kg sólber
375 gr sykur
l1/, dl vatn
Berin eru hreinsuð vel og þvegin. Látin í pott
með sykrinum og vatninu og soðin þangað
til að ekki kemur meiri froða. Þá eru berin
tekin upp með gataspaða og saftin soðin í
10 mín. Berin síðan sett aftur í popttinn og
allt soðið í auknablik. Hellt í heitar og þurr-
ar krukkur og bundið yfir strax.
\
KÁL
Blómkál.
Grænu blöðin ern tekin af blómkálinu og kál-
höfuðið lagt í kalt vatn með ediki um stund.
Þvegið og burstað vel, soðið í 2 mín. í vatni
með litlu einu af natroni. Því vatni hellt af
og blómkálið skolað. Þá er soðið vatn og salt
látið á blómkálið og það soðið í ca 20 inín->
eða þar til það er meyrt. A þennan hátt er
blómkálið ætíð soðið. Soðið blómkál er oft
borðað með hrærðu smjöri sem sjálfstæður
réttur.
Blómkál % jafningi.
SoSiS blómkál
1 blómkál (% kg)
25 gr smjörlíki
25 gr hveiti
2% dl mjólk
Salt, pipar, sj'kur
Söxuð steinselja
Smjörlíkið brætt, hveitið hrært saman við-
Þynnt út með mjólkinni, sem er heit. Salb
pipar og sykur er sett í eftir geðþótta. Soðió
í 5 mín. Blómkálið, sem þegar hefur ver$
soðið, tekið sundur í smá hríslur, og jafningU'
um hellt yfir það í fat. í staðinn fyrir mjólk
er hægt að nota blómkálssoðið. Þetta er borð-
að með kjötréttum, pylsum, steiktum blóð'
mör o. fl.
Blómkálssúpa.
1 blómkál
1% 1 kjötsoð
30 gr smjörlíki
25 gr hveiti
2 eggjarauður
salt, sykur
Það er bezt að nota kálfskjötssoð. Blómkál'
ið er soðið í natrónvatni, þar eftir í kjötso®'
inu (sem er síað), þar til það er meyrt. Smj01.
líkið brætt, hveitið hrært út í, þynnt út me
kjötsoðinu. Þegar sýður, er blómkálið, seU1
tekið er í smá hríslur, látið út i, eggjarau
an hrærð með salti, súpan hrærð smátt °»
smátt út í eggjarauðuna, hellt í pottinn af^
ur, en má ekki sjóða. Salt og sykur sett
eftir geðþótta. Það er ekki nauðsynlegt 3
hafa kjötsoð, þá bara kálsoðið.
BlómkálshúSingur.
1 blómkál
vatn, salt, natrón
212
HEIMILISBLA