Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.09.1974, Qupperneq 30

Heimilisblaðið - 01.09.1974, Qupperneq 30
— Býst ekki við að þú vitir hvað erfiðisvinna er, tautaði hann tortrygginn . . . Jæja, sagði hann svo. Þú getur hyrjað í fyrramálið. Klukk- an sjö á stikilberjunum. Stelpurnar sjá um þau. Og gættu þess bara að trufla þær ekki við störfin. Ég þakkaði honum fyrir og skálmaði aftur vfir ræktarlandið. Ekki var ég þó korninn langa leið frá honum, þegar ég heyrði hann rymja við sjálfan sig: — Hamingjan góða! Alls konar fólk fær maður nú að sjá á þessum tima árs . . . stúd- enta, sígauna, háskólaprófessora, allan fjárann. Maður fær nú að sjá hvernig hann spjarar sig á morgun þessi! Bezt að vona það bezta. Ja, það má nú segja! Ég gekk sem leið lá til Harton og inn á lögreglustöðina. Gat vaktmaðurinn bent mér á sæmilegan stað að gista á fyrir lágt verð? Ég tíni ávexti í Tcd Graves, og mér þætti yænt um ráðleggingu, því að ég er öllu ókunnugur hér. Lögreglumaðurinn leit á mig undrandi. — Éólk er nú mótfallið því að hýsa ávaxta- tínslumenn, sagði hann afsakandi og klóraði sér í höfðinu. Yfirleitt eru það frenrur gróf- gerðir menn, en það virðist nú vera allt i lagi með þig. Ertu stúdent? Ég hristi höfuðið, en sagði ekkert. — Hvaðan ertu? spurði hann. — Érá London? svaraði ég. — Geturðu þá ekki fengið vinnu í London? spurði hann. Ég hélt að allir gætu nú fengið eittlivað að gera þar. — Ég nevddist til að fara úr því starfi sem ég hafði þar. svaraði ég og rnælti hálfvegis satt. Samkvæmt læknisráði. — Ertu þá ekki vel hraustur? spurði lög- reglumaðurinn. Þú virðist líka fölur að sjá. Mamrna East væri víst rétti staðurinn fvrir þig, ef hún þá vill taka við þér. Maturinn þar er góður, og hún er allra vænsta kerling. Ef þú hefur engin afskipti af Dulce, getið þið vel orðið vinir. Farið þangað niður eftir og segið, að ég hafi sent yður, og þá talar hún allavega við vður. Einn lögregluþjónninn okkar bjó hjá lienni þ'rr meir, en nú hafa verið reist Jressi hús handa okkur, svo hún hlýtur að hafa laust herbergi. Tíu mínútum síðar barði ég að dyrum hjá Mömrnu East. Þetta var í einu þeirra fimmtíu timburhúsa, sem reist voru eftir stríðið. Mig minnir þau væru kölluð „sænsku húsin“ í þá tíð, líklega vegna ]>ess að þau voru bvggð sam- kvæmt sænskum teikningum. Ég leit á úlnlið- inn„ eins og ég hafði gert óteljandi sinnum E'rr um daginn, en komst þá að raun um að úrið mitt varð eftir í borginni. Dymar voru opnaðar, og Mamrna East kom út á tröppuna til að tala við mig. Hún var í stórrósóttum kjól, og í hárinu var hún með málmrúllur undir handklæði. Ég brosti til liennar. — Lögregluþjónninn á varðstöðinni ráðlagði mér að fara til yðar, hóf ég máls. Ilann sagði það gæti komið til mála, að þér gætuð leigt mér lierbcrgi. Ég tíni ávexti hjá herra Graves, og ég væri yður þakklátur, ef þér gætuð hýst mig í fáeinar vikur. Hún studdi höndurn á mjaðmir og horfði á mig einbeitt. — Tínið ávexti? sagði hún. Tínið þér ávexti? Mér finnst ekki, að þér líkist ávaxtatínslu- manni . . . Hún hnussaði og leit á hendurnar á mér. — Þú hefur ekki þannig hendur, hélt hún áfram. Ég reyndi að sýnast sem varnarlausastur. — Ég hef ekki verið vel hraustur, svaraði ég, og sneiddi hjá sannleikanum. — Hefurðu gengið með eitthvað smitandi? spurði hún hvasst, en ég gat hrisst höfuðið með góðri samvizku. — Gengið lengi atvinnulaus þá? sagði hún, en ég. hengdi haus og svaraði engu. — Þú ert nú ekki af þeirri tegund rnanna, sem tínir ávextina hjá honum Ted Graves, sagði hún. Það er þó eitt víst. Mér sýnist þu vera herramaður, en það nrá segja að allar teg' undir fólks hittir maður undir sólinni. Þú getuf komið og séð herbegið. Það eru þrjú pund » viku, en þar er líka allt innifalið. Ég tek til nesti, og þú færð góðan morgunmat og góða *54 HEIMILISBLAÐI0

x

Heimilisblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.