Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.09.1974, Blaðsíða 38

Heimilisblaðið - 01.09.1974, Blaðsíða 38
Jólin hátíð friðarins í kaþólskum sið tíðkaðist sú fagra venja í Niðarósi í Noregi, að fulltrúi eða aðstoðarmað- ur erkibiskupsins lýsti friði yfir borginni á ári hverju um leið og jólin gengu í garð. Átti sú athöfn að nrinna menn á það, að um jólin — að minnsta kosti — skyldi ríkja friður á jörðu. Nú á tímum er þessi siður horfin úr sögunni og löngu gleymdur öllum almenningi, eins og rnargar aðrar gamlar og góðar jólavenjur, en andi þeirra margra lifir sarnt eigi að síður í hug okkar og Tijarta. Enn í dag eur jólin friðar- hátíð í meðvitund okkar. Og vér minnumst hans, sem var höfundur trúar vorrar, sem frið- arhöfðingjans rnikla, er vér liöldum jólin heilög og hátíðleg. Vér þekkjum öll hina dásamlegu frásögn í Lúkasarguðspjalli: „En það har til um þessar mundir, að boð kom frá Ágústus kéisara um að skrásetja skykli alla heimsbyggðina, og fóru þá allir til að láta skrásetja sig, liver til sinnar borgar". . . . Og til þess að hlýðnast þessu boði, fóru þau Jósef og María til Betlihem, þar sem María fæddi son og lagði hann í jötu, af því að það var eigi rúm fvrir þau í gistihúsinu. Síðan kenmr engillinn til fjárhirðanna, sem vöktu úti í haganum yfir hjörðum sínum, og færir þei'm fagnaðarboðskapinn um fæðingu frelsarans. — „Og í sömu svipan var með engl- inurn fjöldi himneskra hersveita, sem lofuðu guð og sögðu: „Dýrð sé guði í upphæðum og friður á jörðu nreð Jreim mönnum, sem hann hefur velþóknun á“. Jesús flutti mönnunum boðskap um frið. „Sælir eru friðflytjendur“, segir í Fjallræðunni, „því að þeir munn guðssynir kallaðir verða“. Og enn fremur: „Ef einhver slær þig á hægri kinn þína, þá snú þú einnig hinni að honum“. Ófriður og styrjalir hafa verið hræðilegar í augum Jesú, og eitt hið mesta böl mannanna. Ekki Jrarf að efast um það. En kenning lians hefur ekki komið í veg fyrir, að þær ættu sér stað, eða sætt þjóðirnar hverja við aðra. Það er að mestu leyti frásögnin í Lúkasarguðspjalh sem orðið hefur til þess, að hugmyndin uffl friðarhöfðingjann hefur verið tengd við hann- Næstu aldirnar áður en Jesú fæddist höfðu stöðugar st\'rjaldir þjakað mannkynið, og fáar þjóðir höfðu liðið meiri þjáningar sökurn þeirra en þjóð hans, Gvðingarnir. Þeir höfðu ekki einasta misst frelsi sitt og sjálfstæði, hekhu og verið herleiddir til framandi landa. Nokkrir Jreirra áttu að vísu afturkvæmt til fósturjarðarinnar, en meiri hlutinn hafði dreifzt víðsvegar um heiminn. Þess var því að vænta, að friðarþráin festi djúpar rætur * hjörtum þeirra, og trú þeirra á komu Messíasar var ávöxtur hennar. Messías var í meðvitund þeirra sá mikli konungur, — sem koma mundir safna hinum tvístruðu ísraelsbörnum saman og stofna þúsund — ára — friðarríki hér á jörði'- En það voru ekki Gvðingar einir sem þráðn frið. Þessi sarna þrá eftir friði brann í brjóst- um mannanna víðsvegar um heiminn. Rónv verjar höfðn teygt veldi sitt umhverfis alH Miðjarðarhafið á undanfönium öldum. Margar og rniklar og blóðugar s '’rjaklir höfðu verið liáðar, áður en svo var komið. Síðan brauzt ófriðareldurinn út í sjálfu heimalandi þeirra og borgarastyrjaldir og stjónarbyltingar tóku við hver af annarri. Stórir herflokkar óku hvað eftif annað vfir landið þvert og endilangt með báh og brandi, og þjóðlífið var allt á hverfanda liveli. Þó hafði ófriðarbálið verið enn þá þungbak' ara í Grikklandi og Austurlöndunum. Þar höfðu stvrjaldirnar geisað, hver annarri ferlegrt öldnm sarnan og að lokum orðið aðalorsök þesS- að Jjjóðirnar misstu sjálfstæði sitt og frelsi 1 hendur Rómverjum, og löndin urðu skattlöná Jreirra. En stjórn Rómverjanna hafði hvork1 162 HEIMILISBLAÐI^

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.