Heimilisblaðið - 01.09.1974, Blaðsíða 50
Stundum þurfa Kalli og Palli að heimsækja
storkinn og eru ekki sérlega hrifnir af þvi. Nú
setjast þeir á bak skjaldbökunum og þær eru
seinar í förum, en bangsunum litlu líkar það bara
vel, því þeim finnst storkurinn vera svo leiðinleg-
ur. Hjá honum verða þeir að vera stilltir og kur-
teisir. Þeim er boðin terta, en án sultu og rjóma.
En loks geta Kalli og Palli haldið heimleiðis
þegar þeir koma heim finna þeir bréf frá Bangs®
frænda, svo það glaðnar yfir þeim. „Kæri Kal'1
og Palli,“ stendur í bréfinu, „hér eru tveir að'
göngumiðar að Tívolí og 10 kr. til að skemmtn
ykkur fyrir." Og nú liggur Kalla og Palla á, sv°
þeir þeysa á strútunum.
Kalla finnst húsið þeirra ekki nógu fallegt. Hon-
um finnst það eyðilegt. Og Palla finnst að þeir ættu
að rækta blóm í kringum það, einhver sem spretta
nógu fljótt. Kalli samþykkir það og nú fá þeir nóg
að gera. Þeir grafa og rífa, bera á áburð og vatn.
Síðan planta þeir mörgum blómum meðfram hús-
veggnum. Þeir annast plönturnar af mestu úhV
hyggju, svo þær vaxa fljótt. Og hin dýrin eru fu •
aðdáunar, og Kalli og Palli eru hreyknir af vef ,
sínu. En gallinn við þessar hávöxnu plöntur er s.r
að þær skyggja á gluggana, svo að bangsari1
neyðast til að hafa ljós innandyra.