Í uppnámi - 24.12.1901, Side 13

Í uppnámi - 24.12.1901, Side 13
81 tveggja eða fleiri lakari hinu megin — hin svo nefndu samráðatöfl — tíðkuðust einnig fyr meir, en nú hafa úr þeim myndazt liin svo nefndu kapptefli (tournaments) eða skákþing, þar sem fjöldi taflmanna keppa hver við annan annaðhvort hver í sínu lagi eður á annan hátt. Hið fyrsta allsherjarþing af því tagi var haldið í Lundúnum í sambandi við hina stóru sýningu 1851 og hlaut þar hæztan heiður Þjóðverjinn Adolf Anderssen; en liið markverðasta skákþing einstakrar þjóðar var hið ameríkanska í Nevv York árið 1857, þar sem Paul Mokthy vann sín fyrstu lárber. En svo hefur aukizt tala skákdýrkenda, að stór þing eru nú haldin nálega á hverju ári. Til þessarar greinar skáktaflsins heyrir og það sem er kallað samtíðatöfl; eru það mörg töfl tefld í einu af æfðum skákmanni gegn ýmsum mótleikendum og venjulega gjört til skemmtunar fyrir meðlimi skákklúbba eða hóp áhorfenda, er yndi hafa af skák. Blindtöfl, þ. e. að tefla án þess að horfa á nokkurt taflborð, þekktust jafnvel á hinu pernesk-arabiska tímabili og þeirra er getið á ttalíu á 11. öld; skáksnillingar eins og Philidor tefldu eigi sjaldan þannig, en á vorum dögum hefur verið gjört meira að þess konar heldur en mönnum áður liafði komið til lnigar, og hafa staðið þar fremstir Louis Paulsen (1883—1891), þýzkur maður, er lengi dvaldi í Bandaríkjunum, Paul Moriuiy og Ameríkaninn Harry Nelson Pillsbury (f. 1872); hinum síðastnefnda virðist veita það létt að tefla 20 blindtöfl í einu gegn jafnmörgum mótleikendum. Auk þess að tveir menn hefja tafl og tefla allt til enda á skák- borðinu, eins og er hinn reglulegi gangur tafllistarinnar, er ýmislegt annað einkennilegt og fróðlegt gjört á því. Eigi hið síðsta af þess konar er hið svonefnda “riddarastökk”, sem fólgið er í því að riddarinn er færður frá einum reit yfir á annan þar til hann hefur komið á alla reiti borðsins, einu sinni á hvern. Sanskrítarfræðingar hafa uppgötvað nýlega, að þessi merkilega skákþraut var tíðkuð á Indlandi á síðari hluti 9. aldar og í henni fólgnar vísna- eða ritgátur.1 Á síðari tímum hafa ýmsir stærðfræðingar fengizt við að rannsaka riddara- stökkið og hafa þeir reiknað nákvæmlega út hinar flóknu brautir þessa merkilega skákmanns, og ritað um þetta margar bækur og þær langar sumar. Líkar þrautir hafa verið búnar til, þar sem drottningin eða hrókurinn eru í stað riddarans. Er menn fóru að semja skákdæmi eða íþróttleg tafllok jókst enn sú margbreytilega ánægja, er menn hafa af taflborðinu. Eins og sýnt mun verða hér á eptir er þetta einnig gamalt, því að það var mjög 1 Sjá frekar um þetta hér^að framan bls. 11—14.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122

x

Í uppnámi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Í uppnámi
https://timarit.is/publication/436

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.