Í uppnámi - 24.12.1901, Blaðsíða 17
85
Það er nefnt á íslenzku dammur og heitir líku nafni á flestum
málum í vesturhluta Evrópu — á spönsku: (juego de) dames; á
frönsku: (jeu de) dames; á þýzku: damen(-spiel), en á ensku er það
kallað draughts og í Bandaríkjunum annaðlivort drauglits eða
checkers. lJaó lætur að líkindum, enda þótt því hafi verið mótmælt
af sumum, að orðið dam, dama eða dame, bæði í nafni tafls þessa
og öðrum merkingum orðsins, sé stytt úr latneska orðinu domina
(frú), og því efalaust vísar til drottningarinnar í skáktaflinu, því að
eins og síðar mun sýnt verða fékk damm-maðurinn drottningargang.
Hið enska draughts þýðir upphaflega leikar (sama orðið og hið
íslenzka dráttur og hið danska træk) og bendir til þess að þetta
tafl sé einungis leikaspil þ. e. að leikar eða gangur allra mannanna
sé eins; hins vegar er checkers fleirtalan af liinu fornenska orði
clieckyr, sem þýðir skákborð. Það virðist engum efa undirorpið,
að þessi tegund skákar hafi fyrst orðið til á Spáni. Allt til daga
Am'ons X. voru reitirnir á skákborðinu einlitir bæði í Asíu og Evrópu,
þ. e. skákborðinu var einungis skipt í ferhyrninga, sem greindir voru
hver frá öðrum með mjóum svörtum línum, er iágu þvers og endi-
langt eptir borðinu. Þegar nú reitirnir voru aðgreindir með litum
(hvítir og svartir eða rauðir og svartir), bar undir eins svo mikið
á liornlínum reitanna, og mun það að líkindum hafa átt góðan þátt
í að þetta dammtafl varð til, enda er 1 því einungis leikið eptir
hornlínunum. Reitunum, er notaðir voru, fækkaði þannig um
helming og mönnunum uin fjórðung; ieika-afbrigðin urðu færri og
hið auða svæði í tatíbyrjun að mun þrengra. Gangur drottningar-
innar á þeim tímum (um einn reitt á ská) varð liinn venjulegi gangur
allra mannanna, en er þeir drápu liöfðu þeir biskupsgang, eins og
hann var í liinni asíatisku-Evrópuskák (á þriðja skáreit og mátti
hlaupa yíir mann, er á milli stóð); en eins og peð í skák, gátu damm-
mennirnir einungis gengið beint áfram þar til þeir komust á yztu
reitaröðina, þá jókst vald þeirra og þeir gátu gengið aptur á bak og
áfram. Dammurinn mun þannig sprottinn af því, að reynt liefur verið
að húa til einfaldara og óbrotnara skáktafl, er auðveldara var að læra
og hægara að tefla.
Dammur er hið einasta tafl, er kalla má skilgetið afkvæmi skák-
tafisins; en það hefur verið til mesti sægur bastarða og flestir þeirra
slæmar stælingar, svo sem “stórskák,” tefld á stækkuðu skákborði;
“Timúrs-skák,” tefld á borði ekki einungis stærra heldur líka
öðruvísi löguðu; “hraðboðaskák” (Kúrirskák), tefld á borði með 8x12
reitum og með 24 mönnum; “nýslcák” á 100 reitum með 10 aðal-
oaönnum og 10 peðum eða 140 reitum og 28 mönnum; “aritmetiska
taflið” eða “rhytmomachia,” stundum lika nefnt “tafl Pýþagorasar,”