Í uppnámi - 24.12.1901, Blaðsíða 64
þótt látt færi, að hið sprenglærða háskólaráð í Harnell, sem að öllum rétti
var bæði grundvöllur og þungamiðja álits þess, er háskólinn naut, mundi
á næsta fundi krefjast þess, að prófessor Perkins, sem það nýlega og
með svo mikilli ákefð hafði kjörið til háskólakennara, afsalaði sér
embætti sínu. En einn morgun um þessar mundir lagði póstboðinn
bréf eitt fyrirferðarmikið og fagurlega prýtt ensk-indverskum frímerkjum.
í bréfakassa prófessorsins. Það var skrifað á ágætu Hindustaní og
bréfritarinn var innfæddur Bramíni, sem hafði verið kennari og vinur
ameríkanska prófessorsins, er bann dvaldi á Indlandi, og hafði hann
nú sem forstöðumaður safnsins í Harnell gjört Bramínann að erind-
reka safnsins. Bréfið skýrði frá því, að bráðlega væri von á ijölda
af kössum, sem áttu án efa að auka dýrgripina í geymsluklefum
safnsins, sem enn höfðu ekki verið teknir upp, þótt bréfritarinn
gjörði eigi berlega ráð fyrir, að slíkt ætti sér stað. Framhald bréfsins
var á þessa leið: “Mér er sönn ánægja, kæri lærisveinn minn og vinur,
að geta sent yður nokkrar dýrmætar myndir og áritanir, sem flestar
eru frá hellna-musterum og öðrum gömlum byggingum, er þér þekkið
svo vel. Þær hefðu komið yður fyr í hendur, ef uppgröftur og úttaka
þeirra hefðu eigi verið svo miklum erfiðleikum hundin, og ef forn-
fræðafélögin og forngripasöfnin hér hjá oss hefðu eigi, eins og vant
er, gjört mér svo erfitt fyrir. En nú eru allir pakkarnir komnir út
á skip og vona eg, að þeir komist til yðar með heilu og höldnu þó
þungir séu. Hið merkasta í þessari viðbót við safn yðar er án efa
allmargar höggnar lágmyndir frá rústunum í héraðinu við Savástu-
fljót — menjar hins einkennilega listaskóla Búddatrúarmanna, er
hófst og leið undir lok á landamærunum hjá Gaudhára þjóð. Eg hef
tekið eptir því, að listasöguritarar Vesturlanda hafa talað að eins
lauslega um vöxt og viðgang þessa skóla. Hin mörgu, góðu sýnishorn,
sem þér getið hér eptir lagt fram til sýnis, munu gefa tilefni til víð-
tækari íhugana og margra markverðra ályktana. En með bréfi þessu
munuð þér finna ítarlega lista, með nákvæmum skýringum, yfir allt
það, sem kassarnir hafa að geyma. Mætti eg leyfa mér að leiða
athygli yðar sérstaklega að einum hlut vegna þess að hann á svo
bersýnilega eitthvað skylt við brot eitt, sem þér hafið áður fengið, þó
hann reyndar líti út fyrir að vera nokkuð skírari og yngri, en það
mun því að þakka, að hann var svo vel geymdur, þar sem hann
fannst. Ef til vill munið þér eptir steinspjaldi einu, er sent var í
fyrra og var í lögun sem átta-sinnum-átta taflan — eins og fornu
sanskrítar-rithöfundarnir vorir kölluðu borðið, sem notað er við
skáktafl — með upphækkuðum línum, er skiptu yfirborðinu í hina
64 reiti, sem nauðsynlegir eru. Borðið var autt, að því undanteknu,
að á tveim reitum voru lágmyndir af konungshúum eða kórónum lítið