Í uppnámi - 24.12.1901, Blaðsíða 46
114
domini 1901. Þreyttu þar tafl 70 innfæddir Kapbúar gegn 70 taflmönnum
fæddum i Európu. Það befur lengi orð á þvi leikið, að í Kapstaðnum
væru flestir taflmenn i hlutfalli við ibúafjölda, og þykjast nú Kapbúar hafa
sýnt það. Hinn ákveðni tafltimi voru 3 stundir og er bann var hálfnaður
höfðu nýlendumenn 22'/2 stig, en Evrópumenn 26 J/2 stig, en úrslit urðu þau,
að báðir hlutu jafnmörg stig, sem sé 591/2 hvor, og varð þvi fullkomið
jafntefli. Búastriðið virðist hleypa skákvígamóði i menn þar syðra og
er þvi vonandi, að afleiðingar þess verði ekki eins og Kúbastriðsins siðasta,
þvi að eptir það strið er Havana-skákklúbburinn dofinn og dauður, en
fyrmeir var hann mjög frægur.
—Kapptöfl hins hollenzka skáksambands voru haldin í Haarlem 22.—30. júlí.
Alls tóku 11 taflmenn þátt í þeim og hlaut hæztu verðlaun (200 hollenzk
gyllini) dr. A. G. Olland (Utrecht), 8 stig; 2. verðlaun B. Leussln
(Utrecht), 7l/2 stig; 3. A. E. v. Foeeest (Haag) 7 stig; 4. prófessor
V. Exnee (Buda-Pest), 6 stig, en 5. og 6. var skipt milli R. J. Loman
(London) og dr. Mannheimeb (Frankfurt a. M.), hvor 5 a/a stig.
—I Karlsbad kepptu þeir A. Albin og G. Maeco töfl í byrjun ágúst-
mánaðar; hinn síðarnefndi vann með 4 gegn 2; 4 voru jafntefli. Verð-
launin voru 800 kr. (austurriksk mynt).
—Blanc, umráðandi spilahússins i Monte Carlo (Monaco), hefur falið A. de
Riviéee að auglýsa, að þar verði haldin í vetur (1902) önnur alþjóða
kapptöfl, eins og síðastliðinn vetur; þau eiga að byrja 1. febrúar næst-
komandi, og er mælt, að 16 fyrsta-flokks-taflmenn hafi þegar boðað hlut-
töku sina.
— Hið þýzka skáksamband heldur skákþing í Hannóver næsta ár (1902).
Auk þess að þar eðlilega verða haldin kapptöfl á ennfremur að verða þar
alþjóðleg skákdæmasamkeppni; er henni skipt i tvær deildir, aðra fyrir
þrileiksdæmi, hina fyrir fjórleiksdæmi. I hinni siðari eru verðlaunin 100,
75, 50 og 30 þýzk mörk, en í hinni fyrri 75, 60, 40 og 20 mörk.
Dæmin eiga að vera komin fyrir 20. janúar 1902, og verða síðar birt í
“Deutsche Schachzeitung” og “Deutsches Wochenschach.” Hinn 22. júlí
heldur sambandið hátíð í minningu 25 ára afmælis síns.
—I Buffalo hefur “New York State Chess Association” haldið þing í ágúst
og var þar þreytt kapptefli. Lyktaði þannig, að Pillsbuet hlaut 9 stig,
W. E. Napieb 6'/2i E. Delmae ö1/^, C. S. Howell 4'/2, F. J. Mabshall
2j/2 og L. Kabpinski 1 stig. Þykir Maeshall hafa verið óheppinn. Á
þinginu tefldi Pillsbuky og 16 blindtöfl i einu og vann 11 af þeim, en
5 urðu jafntefli. Hann kvað nú ætla að draga sig burt af skáksviðinu og
fara að gefa sig aptur að lögfræðisnáminu. Þó er mælt, að hann ætli
fyrst til Európu með konu sinni og muni taka þar þátt í kapptöflum i
Hannóver og Monte Carlo, þá að þreyta töfl við Laskek og loks að
enda með 25—30 samtiða-blindtöflum.