Jólablað félagsins Stjarnan í austri. - 24.12.1919, Page 7
starfi, sem hann byrjaði á fyrir tveimur þúsund
árum. Pá muni hann koma, til þess að hjálpa til
að byggja upp þau þjóðfélög, sem grundvallast á
kærleika en ekki hatri, samvinnu í stað samkepni,
heildarhugsun í stað eiginhagsmuna.
Eins og vér höfum gert undanfarnar jólanætur,
viljum vér því helga sameiginlega nokkra stund
])essari bæn og íhugun kl. 12, nóttina helgu:
»Krists-eðlið vakni og dafni í hjörtum vorum og
annara mannanna barna, svo að sá jarðvegur geti
skapast sem gerir honum, kœrleiksmeistaramun
mikla, það unt, að koma aftur til vor og halda
áfram starfi sínu vor á meðal.«
Osk vor er, að sem fiestir vildu sameinast oss í
þessari bæn. Og með þessari hugsun bjóðum vér
svo hver öðrum og mannkyninu í heild sinni:
Gleðileg jól!
Aðalbjörg Sifiurðardóttir.
5