Jólablað félagsins Stjarnan í austri. - 24.12.1919, Page 59
kemur til vor, sem hefur gert árásir á krislindóminn og
boðar endurkomu Krists með sannfæringarkrafti — þá verður
það til þess, að heimurinn verður að fara að hlusta, kemst
ekki hjá því að gefa slíkum boðskap einhvern gaum. Vér
verðum að kannast við, að það var all-eftirtektarvert, að
það skyldi verða Mrs. Annie Besant, sem ílytur nú þjóðun-
um þessi fagnaðartíðindi. Og eina skýringin á þvi, er alt
hennar líf og þroski. Og þegar vér minnumst hinnar fölska-
lausu elsku hennar á sannleikanum, sem hún hefur alt af
verið að leita að og vitum, að það hefur verið sannleiks-
ástin, sem hefur verið hið knýjandi atl í öllu lífl hennar til
allra framkvæmda, þá fáum vér skilið, að það var svo ofur
eðlilegt, að slík kona yrði til þess að flytja oss boðskapinn
um komu meistarans, kona, sem var einráðin i því að leita
sannleikans, hvað sem það kostaði og halda honum svo
á lofti, er liún hefði fundið hann.
Þá er ekki síður eftirtektarvert, að þessi hoðskapur skyldi
nú koma fram hér i Lundúnaborg, þar sem biblíurannsókn-
irnar sýnast hafa leitt það í ljós, að aðalatriðið í kenningum
Krists, var boðskapurinn um endurkomu hans. Menn hafa
margir hverir skoðað þennan árangur, er orðið hefur af
hinum vísindalegu rannsóknum sem hættulegan fagnaðarer-
indinu, eða álíta, að hann mundi verða því meira eða
minna til hnekkis. Hann hefur og áreiðanlega stundum
orðið vopn í höndum vantrúarinnar. En ef mér skjöplast
ekki, þá verður nú þessi skoðun, er vísindamaðurinn Schwei-
tzer hefur haldið á lofti, einhver hin alfarasælasta braut, sem
biblíufræðin hefur nokkru sinni lagt inn á. Það mun reynast
rétt, sem Kristur sagði sjálfur, er hann var að skilja við
lærisveina sina og lagði mesta áherzlu á, að hann færi úr
heiminum, til þess að koma aftur inn í heiminn. En vera
8
57