Jólablað félagsins Stjarnan í austri. - 24.12.1919, Side 63

Jólablað félagsins Stjarnan í austri. - 24.12.1919, Side 63
beinar brautir hans. Og vér skulum hafa það jafnan hug- fast, að það er sjálfur kærleiksmeistarinn, sem vér vænturn — hann, sem hefur haft hin ævarandi áhrif á heiminn, þessi fáu ár, sem hann lifði austur á Gyðingalandi fyrir um 2000 árum. Hver einasti maður, hversu vantrúaður sem hann kann að vera, hlýtur að kannast við, að sú koma Krists í holdinu, hafi markað greinileg timamót í sögu mann- kynsins. Því upp frá því hefur kærleikurinn verið skoðaður sem hið insta eðli lifsins. Aðalatriði eða kjarninn í hverri trú hefur verið: ástin til guðs og manna. Geisli frá hinu guðdómlega Ijósi féll til vor af himni við komu kærleiks- meistarans. Og jafnvel þótt oss hafi sýnst sem sá geisli hafi horfið sjónum vorum, þrátt fyrir það, að engir sýndust trauðari lil þess að fylgja sendihoða sannleikans en þeir menn, sem játuðu fylgi við kristna kirkju, — þá var geisl- inn eigi að siður í kristindóminum. Og þrátt fyrir það, að engir hafa fótum troðið eins svivirðilega boðorð kærleikans eins og einmitt þeir, sem kalla sig kristna, þá var hið mikla Ijós i kirkju hans og lýsti heiminum. Hann kom til vor hógvær og litillátur. Hann lifði hér í heimi hinu einfaldasta og hispurslausasta lifi, jafnvel þótt líf hans væri hið dýrðlegasta líf, sem lifað hefur verið á jarðriki. Hann dó á krossi og fyrirgaf og bað þá fyrir fjand- mönnum sínum og sýndi oss þannig, að kærleikurinn er »alfa« og »omega« og er hinn fullkomnasti skilningur á uppruna tilverunnar. Og hann mun koma aftur, til þess að endurnýja boðskap sinn og vísa oss sjálfur þann veg, sem vér verðum að fara, ef oss á að auðnast að lifa eftir kenn- ingum hans — nú eftir margra alda þreytandi viðleitni, sem 61

x

Jólablað félagsins Stjarnan í austri.

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jólablað félagsins Stjarnan í austri.
https://timarit.is/publication/439

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.