Jólablað félagsins Stjarnan í austri. - 24.12.1919, Qupperneq 72
tegundum, sem berast að jörðu á hinum ýmsu tímum og
umlj'kja hana. Þannig á það sér stað, að þótt allur þorri
manna hafi ekki enn þá gert betur en fylgjasl með þeim
áhrifasamhöndum, sem hér hefur verið lýst, þá eru þeir þó
nokkrir, sem enn þá lengra eru komnir og eru farnir að
svara hærri sveifluhreyfingum. l5egar svo langt er komið, að
vorhnúturinn hefur náð fyrsta stigalug einhvers stjörnu-
merkis, þá byrja áhrif næsta merkis að gera vart við sig. En
eftir rösk 720 ár eða um 2650 e. Kr: hyrjar vorhnúturinn
ferð sina fram hjá vatnsberanum. Þessi áhrif eru ákveðnari
og meira áberandi, ef áhrifaríkt merki tekur við. Fiskarnir
tilheyra veiku merkjunum, en vatnsherinn þeim sterku og
vegna þess að vatnsberinn tekur hér við af fiskunum, þá
gætir meðverkandi áhrifa hans að sínu leyti meira nú, en t.
d. fiskanna gerði á 10 fyrstu sligunum í hrútnum eða á
tímabilinu frá 222 f. Kr. til 498 e. Kr,, sem getið er hér að
framan, enda er lítill vafi á því, að nú eru þeir tiltölulega
ileiri, sem svara grunntón vatnsberans, heldur en menn
svöruðu grunntón fiskanna á fyrnefndu timabili.
Þess má geta hér, að frumáhrif fiskanna eru meðaumkun,
hjálpsemi, og stuðningur veittur og móttekinn. Kærleiks- og
fórnarkenning kristindómsins stendur í nánu sambandi við
þau. — Frumáhrif vatnsberans eru bræðralag og samvinna
og má sjá þess Ijós merki, að þau eru nú þegar farin að
koma í ljós með mönnunum.
Tímabil það, sem nú fer í hönd, er miklu markverðara,
en þau, sem mannkynið hefur sögur af. Það, sem gerst
hefur hin síðustu árin, ber þess órækt vitni, að miklar
breytingar séu að fara fram með mannkyninu. Alt gamall
er rifið niður og srarla stendur steinn yfir steini, svo hrein-
lega er að verki gengið, en á eftir þessum eyðileggingar- og
70