Jólablað félagsins Stjarnan í austri. - 24.12.1919, Side 73

Jólablað félagsins Stjarnan í austri. - 24.12.1919, Side 73
niðurrifningar-tíma kemur ný jörð og nýr himin, þ. e. a. s.: nýir lifnaðarhættir og nýtt andlegt lif. Þetta niðurrifningar- verk er í nánu samræmi við frumáhrif vatnsberans. Mörgum öldum fyrir Krists burð spáði persneski stjörnu- spekingurinn Gjamasp þvi, að Kristur mundi koma, og spá- dómur hans rættist. Nii er þvi og spáð, að Kristur muni innan skamms koma aftur til þess að undirbúa og stofnsetja með mannkyninu hina miklu menningu samvinnunnar og bræðralagsins, sem á að va\a upp og bera ávöxt á tímabil- inu frá 2650 lil c. 4800 e. Kr. Hin fyrstu áhrif vatnsberans birtast sem breytandi, endurbætandi, siðbætandi, en áður en þau geti til fullnustu notið sin, verður alt það, sem óhreint er í menningu þeirri, er liðin árhundruð hafa skapað, að koma upp á yflrborðið og hverfa, svo að mannkynið verði til fullnustu undir það búið að veita viðtöku hinum heilaga samhljómi bræðralagsins, er ómar yfir veröldina, þegar hið mikla tímal)il menningar þeirrar, er vatnsberinn ber i skauti sínu, hefur göngu sina. Getum við svo sagt nokkuð frekar um þetta timabil? Við vitum, að hin fyrstu áhrif vatnsberans verða blandin undiröldu frá vogarmerkinu og Venusi. I’að er vogarstöngin, sem sífelt gengur upp og niður, jafnar alt og vekur samhygð og samræmi og þá mun mikill andlegur kraftur birtast hér á jarðriki. Tímabil þetta byrjar um 2650 og endar um 3370 e. Kr. l5á hefst það timabil vatnsberans, sem er blandið áhrifum frá tviburanum og Merkúriusi. Þessi áhrif munu birtast í nokkuð breytilegri myndum en timabilið næsta á undan, en hugsanalífið mun verða ákveðið og þróttmikið og ef til vill mun hugsæisgáfan verða einkenni þessa timabils, sem nær frá 3370 til 4090 e. Kr. og eftir þann tíma munu ávextir vatnsberatímabilsins koma til fullnustu í ljós með 71

x

Jólablað félagsins Stjarnan í austri.

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jólablað félagsins Stjarnan í austri.
https://timarit.is/publication/439

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.