Jólablað félagsins Stjarnan í austri. - 24.12.1919, Blaðsíða 82
ærin hvöt, til þess að reyna af öllum mæfti að lifa sam-
kvæmt heiti yðar, alt þetta líf.
Það er mjög liklegt, að kenningar hans munu fara i lika
ált og kenningar allra hinna meiri háttar trúarbragða. En
auk .þess mun hann leggja ríkari áherzlu á eitt og annað
atriði i hinum ýmsu trúarbrögðum, alt eftir því, hvað helzl og
bezt á við á hverjum stað. Ég geri t. d. ráð fyrir, að hann
muni leggja aðaláherzluna á sjálfsfórn og sanna guðrækni
með kristnum mönnum. Hins vegar mun hann brýna fyrir
þjóðum, sem tilheyra öðrum trúarbrögðum, ýmsar aðrar
dygðir eða eðliskosti, sem hann sér, að þeim er áríðandi
að glæða hjá sér. Og þér fáið að sjá hvað það er, sem hann
álítur að þjóðirnar þarfnist fyrst og fremst, þegar hann er
kominn. Það getur átt sér stað, að hann endurnýi þá trú, sem
fyrir er eða rýmkvi hana að meira eða minna leyti og veki
þannig nýtt lífsmagn með henni. En það getur líka farið svo,
að hann stofni nýjan sið. Vér vitum ekki hvað hann álítur
æskilegast, en hitt vitum vér, að hinn andlegi konungur vor
er imynd vizkunnar, máttarins og fegurðarinnar, og hvað
svo sem hann gerir, þá hlýtur það að vera hið viturlegasta,
sem unt er að gera og mannkyninu fyrir lieztu. Og það, sem
yður skiftir mestu máli er það, að þér þekkið hann, er hann
kemur og verðið reiðuhúnir til að fylgja honum.
Þá er hann var hér siðast, sögðu menn, að þar sem sitl
kendi hver, þá væri ekki gott að vita, hvað væri sannleikur;
en hann sagði, að hver sá maður, sem gerði vilja sins
himneska föðurs, kæmist að raun um, hvað væri sannleikur.
Leiðin, sem liggur til sannleikans, er að láta sér lærasl að
gera vilja guðs.
Lifið því samkvæmt þeirri kenningu, sem þér hafið nú
sem stendur og þegar svo einhver æðri eða ýtarlegri kenning
80
i