Jólablað félagsins Stjarnan í austri. - 24.12.1919, Side 87

Jólablað félagsins Stjarnan í austri. - 24.12.1919, Side 87
Götusóparinn. Það var einu sinni í fyrndinni, þegar Rishíarnir komu miklu oftar til mannanna barna en nú, að einn þeirra kom í borg eina austur í Bengal. Erindi hans var að flytja mönnunum fagnaðarerindi guðs. Allur borgarl57ðurinn þyrptist að bonum, til þess að hlýða á bann, því að allir vissu, að hann var þeim af guði sendur. Og meðal áheyrendanna voru fjórir menn, sem orð hans og kenning hafði enn þá meiri áhrif á en aðra. Einn þeirra var heimspekingur, annar skáld, þriðji stjörnu- fræðingur og fjórði götusópari. Þeir höfðu heyrt hinn mikla fræðara tala um helgunar- brautina eða veg lærisveinsins, sem kallaður er. Og þeir urðu gagnteknir af ákafri þrá að gerast sem fyrst lærisveinar hans. Þegar hann var hættur að kenna lýðnum, gengu þeir allir fram fyrir hann, lutu honum og háðu liann að gera þá að lærisveinum sínum. Hann kvaðst skyldi minnast þeirra, en þeir gætu ekki orðið lærisveinar hans, fyr en að sjö árum liðnum. Þetta sjö ára tímabil yrðu þeir að nota sem bezt, til þess að undirbúa sig, svo að þeir gætu fylgt honum, er hann kallaði þá til sín. Meistarinn hélt svo leiðar sinnar til næstu borgar og tlulli mönnum' þar hinn sama fagnaðarboðskap guðs. 85

x

Jólablað félagsins Stjarnan í austri.

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jólablað félagsins Stjarnan í austri.
https://timarit.is/publication/439

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.