Jólablað félagsins Stjarnan í austri. - 24.12.1919, Page 90
hverju kvöldi og lagðist til hvíldar með nafn meistarans á
vörum og þá þrá í hjarta, að þjóna honum.«
í þessum svifum kom meistarinn út úr musterinu og allir
lutu honum.
»Kom þú, sonur minn,« sagði meistarinn og leit til götu-
sóparans.
Allir einsetumennirnir undruðust hve mikil ástúð og virð-
ing lýsli sér í þessum orðum fræðarans. Skáldið gekk þá
fram fyrir hann og mælti:
»Megum vér þá ekki fylgja þér lika eins og götusóparinn?«
En meistarinn hristi höfuðið, leit til þeirra angurblíðu
augnaráði og mælti:
^Það mundi ekki verða yður til nokkurra nota, þér eruð
ekki enn þá undir það búnir að gerast lærisveinar mínir.«
Heimspekingurinn, skáldið og stjörnufræðingurinn horfðu
um stund á eftir meistaranum og götusóparanum, unz þeir
hurfu fyrir bugðu, sem var á veginum. Síðan héldu þeir
áfram ferð sinni inn í borgina, staðráðnir í því að halda
áfram undirbúningsstarfi sínu, mitt í hávaða og glaumi hins
daglega lífs og — í þjónustu sambræðra sinna.
Pýtt hefur lauslega S. Kr. P.