Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1925, Page 18

Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1925, Page 18
96 Magnús Jónsson: IÐUNN kunnugt er, fyrir margvíslegum getsökum út af því að þeir komu saman á næturþeli framan af, meðan þeir áttu hvergi friðland, og neyttu þar »holds og blóðs Drottins*. Kornaxið var talið helgast allra helgra dóma í laun- helgunum í Elevsis, en hvað það eiginlega merkti er ekki unt að segja. Upphaflega mun það hafa staðið í sambandi við það, að Demeter og Dionysios voru guð- dómar er stjórnuðu gróða jarðar, en á blómatíma laun- helganna hefir það vafalaust haft aðra og miklu háleit- ari táknlega merkingu. Annars munu margar athafnir hafa farið fram, og meðal annars það, að mega sjá og hafa hönd á hinum helgu dómum. A það bendir þessi klausa: »Eg hef fastað, eg hef drukkið af hinum helga miði, eg hef tekið upp úr hinni helgu kistu og snert á og látið það aftur í hólfið. Eg tók það aftur úr hólfinu og lét það aftur í kistuna«. Þó að þessi klausa sé nokkuð löng, þá sýnist svo sem hún hafi verið umgangsorð þriðja stigsins. Hafði hofgoðinn hana upp fyrir innsækjendunum þar til þeir kunnu hana. Að athöfninni lokinni settust hinir nývígðu »epopte« á sætin í kring og horfðu á ýmsar athafnir, sem prest- arnir framkvæmdu. Daginn eftir var fastað og að föst- unni lokinni var neytt hins helga mjaðar og heilags brauðs. Rithöfundar þeir, sem vígslurnar höfðu tekið, lýsa þeim sumir, en þá jafnan með mjög óákveðnum orðum eins og eðlilegt er. Sumir tala um 5 stig, og Plató kvað segja, að þau svari til hinna 5 vísindagreina, tölvísi, flatarmálsfræði, rúmmálsfræði, sönglistar og stjörnufræði. Gjald var greitt fyrir upptökuna, 15 drökmur eða um

x

Iðunn : nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.