Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1925, Blaðsíða 60
138
Þorsteinn Gíslason: ]ón frá Sleðbrjót.
IÐUNN
Eysteini Árnasyni í Winnipeg. Þau ]ón og Ingibjörg
voru þá til heimilis hjá móður sinni, er fyrir skömmu
hafði flutst til Winnipeg.
Fyrstu árin sem Jón dvaldi vestra, var hann með
fjölskyldu sína í Álftavatnsbygð hjá Jóni Sigurðssyni vini
sínum, sem fyr er nefndur. Þaðan fluttust þau í Siglu-
nesbygð við Manitobavatn og bjuggu þar fram til vors-
ins 1923. »Búnaðist þeim mæta vel, enda nutu þau
góðrar aðstoðar sona sinna uppkominna*, segir í eftir-
mælagrein um Jón í Heimskringlu, 2. jan. 1924.
»Aldrei kunni Jón hér fyllilega við sigc, segir í sömu
greininni. »Var hugurinn tíðast heima í sveitinni hans
fornu. Heilsu hafði hann hér þó allgóða framan af, en
lakari hin síðustu ár«. Veturinn 1923 fann hann fyrst
til muna til sjúkleiks þess, er dró hann til dauða, og í
maí 1923 var hann fluttur á sjúkrahús í Winnipeg.
Skömmu síðar fluttust kona hans og börn, sem hjá þeim
voru, til bæjarins og dvaldi hann eftir það á heimili
þeirra, og andaðist þar.
Þ. G.