Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1925, Blaðsíða 56
IÐUNN
Jón Jónsson
fyrv. alþm. frá Sleðbrjót.
26. nóv. 1923 andaðist í Winnipeg ]ón jónsson fyrv.
alþm. frá Sleðbrjót, 71 árs gamall. Hann var Austfirð-
ingur, fæddur á Hnitbjörgum í ]ökulsárhlíð 2. nóv. 1852.
Jón faðir hans bjó lengi í Hlíðarhúsum í Jökulsárhlíð
og var greindar maður og góður bóndi. Móðir Jóns frá
Sleðbrjót hét Guðrún Asmundsdóttir bónda í Hlíðar-
húsum, en hennar móðir Katrín Níelsdóttir bónda á
Osi í Hjaltastaðaþinghá Jónssonar prests á Eiðum
Brynjólfssonar, en kona Níelsar og móðir Katrínar hét
Guðrún Sigfúsdóttir prests Guðmundssonar á Asi í
Fellum.
]ón mun í bernsku ekki hafa notið annarar mentunar
en algengt var um sveitabörn á þeim árum. En hann
var greindur og bókhneigður og jók brátt þekkingu
sína svo, að hann varð vel að sér. Hann byrjaði ungur
búskap, árið 1876, og bjó fyrst í Bakkagerði og síðan á
Ketilsstöðum, og eru þeir báðir bæir ytst í Jökulsárhlíð, en
þaðan fluttist hann að Húsey í Hróarstungu, sem er þar
á móti, austan Jökulsár, ytsti bær í Tungunni, og bjó
þar 3 ár. Fluttist svo aftur vestur yfir ána og bjó nokk-
ur ár á Sleðbrjót í Jökulsárhlíð og einnig um tíma aftur
í Bakkagerði. Var hann á Sleðbrjót, er hann varð fyrst
alþingismaður, og hefir jafnan síðan verið kendur við
þá jörð, þótt hann byggi þar aðeins fá ár. Haustið
1900 fluttist Jón til Vopnafjarðar og setti á stofn gisti-