Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1925, Side 21

Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1925, Side 21
IÐUNN Launhelgarnar í Eleusis. 99 ágætismönnum, sem fyr, samtímis og síðar gengu þessa sömu braut. Sennilegt er, að engin föst og ákveðin kenning hafi fylgt launhelgunum, heldur hafi þær frekar fylgt kenn- ingunni eins og hún var á þeim og þeim tíma. Þær töluðu til tilfinninga og vilja, en hugsunin mátti vera eins og hún gat best samrýmst eðli hvers eins. T. d. þykir ekki efi á, að bæði eingyðistrú og trú á annað líf, hafi átt sér mikinn styrk í launhelgunum í Elevsis, en hvorugt mun þó hafa verið þaðan komið, heldur frá heimspeki og trúarbrögðum. En það varð fyrst almenn- ings eign, frjósamt og kröftugt, þegar það komst í sam- band við tilfinninga og viljaáhrif launhelganna. Sumir halda að launhelgarnar í Elevsis hafi beinlínis unnið á móti gömlu goðatrúnni. Þar hafi verið kent, að goðin hafi aðeins verið miklir menn og ágætir, en guð væri enginn til nema -hinn mikli, æðsti, eini höfundur alls. En af því að þetta gat haft.ill áhrif ef það hefði komist út til allra, þá hafi þessi sannleikur verið lokað- ur inni í »mysteríum«, launhelgum, lokaður innan ákveð- ins flokks manna, sem óhætt var að trúa fyrir þessu. Hvað sem um það er, þá er það víst, að launhelgarnar geymdu alt það, sem lífskraft átti í hinum fornu trúar- brögðum og heimspeki og þær voru eina aflið, sem nokkurs gætti þegar hin mikla hreyfing austan að, krist- indómurinn, tók að leggja undir sig heiminn. Hann varð þeim að aldurtila, en þó alls ekki svo, að hann yrði ekki fyrir áhrifum af þeim. Aftur á móti var hann al- veg ósnortinn af hinum gömlu goðatrúarbrögðum Grikkja og Rómverja. I hæsta lagi að hann gæti viðurkent, að þeir Seifur og hans félagar væru illir púkar, sem betra væri að vara sig á. Magnús Jónsson.

x

Iðunn : nýr flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.