Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1925, Side 28

Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1925, Side 28
106 Thora Friðriksson: IÐUNN Og þó að nú allir pólitískir flokkar á Frakklandi oigni sér hann, þá er það sem skáld og rithöfundur, er hann mun lifa í minningu þjóðarinnar, en ekki sem stjórnmálamaður, enda hefir hann aldrei setið á þingi eða verið við stjórn riðinn eins og mörg önnur stórskáld Frakka t. a. m. Chateaubriand og Lamartine. Maður, sem var eins hrifinn af fornöldinni og Anatole France og sem hafði svo opið auga fyrir sögulegum sannleika var í rauninni undir það búinn að verða aft- urhaldsmaður. En Dreyfusmálið (árið 1898) breytti al- gerlega skoðunum hans og stefnu í stjórnmálum og hann lenti í fanginu á jafnaðarmannahöfðingjanum Jaurés. Mælska Jaurés hreif hann eins og marga aðra, án þess þó að deyða dómgreind hans, og að hann ekki hafi verið stjórnarbyltingarmaður sést vel á bók, sem hann gaf út 1910: „Les Dieux ont soif“ (Guðirnir eru þyrstir). Bókin er napurt háð um helstu menn stjórnarbyltingar- innar miklu. Því ber nú samt ekki að neita, að kenningar jafn- aðarmanna breyttu ýmislegu í fari Anatole France, gerðu gletnina að beisku háði, efasemina að afneitun og leiddu þjóðfélagsfræðinginn inn á hinar hálu brautir, sem á efri árum hans sýndust nálga hann hyldýpi kommúnismans. Kommúnistablaðið »l’Humanité« skýrir nú samt í tilefni af andláti hans frá því hreinskilnislega, að skáldið hafi ekki fylt hóp þeirra félaga — en samt fylgja kommúnistar með rauðum fánum kistu hans til moldar í dag. Eins og fyr er sagt tók Anatole France ekki bein- línis þátt í stjórnmálum, en bækur hans fjölluðu oft um stjórnmálastefnur. t. d. í söguflokknum: l’Histoire con-

x

Iðunn : nýr flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.