Iðunn : nýr flokkur - 01.10.1925, Blaðsíða 12
234
Ólafur Lárusson:
IÐUNN
Ólöf og Djörn áttu fjögur börn er upp komust, þrjá
sonu, Arna, Einar og Þorleif, og eina dóttur, Solveigu,
Arni féll í orustunni á Brunkabergi í Svíþjóð 1471, í
herferð með Kristjáni konungi fyrsta, og var því látinn
áður en móðir hans dó. Solveig hafði hlotið Hól í Bol-
ungarvík í skiftum eftir föður sinn og fleiri jarðir þar
í sveitum og bjó hún á Hóli. Þar var ráðsmaður hjá
henni, er Jón hét Þorláksson, seni var orðlagður fyrir
það hvílíkur listaskrifari hann var. Þau feldu hugi saman
og vildu eigast. En Jón var fátækur og þótti frændum
Solveigar eigi jafnræði með þeim og meinuðu þeim hjú-
skapinn. Þau bjuggu þó saman á Hóli og eignuðust 8
börn. Þegar Ólöf var látin, skiftu þeir bræður, Einar og
Þorleifur, arfi eftir hana með sér einum, en gerðu Sol-
veigu systir sína alveg afskifta. Hefir þeim verið þungt
í skapi til hennar fyrir sambúð þeirra Jóns og ætlað sér
að beita við hana ákvæðum Jónsb. Kvennag. 7, um það,
að dóttir, sem legin er í föðurgarði eða bróður, skuli
ekki taka arf eftir föður né móðir. Þó er svo að sjá
sem sambúð þeirra Jóns hafi verið slitið áður en Ólöf
létst, því þá er komið til tals að Solveig giftist Páli syni
Jóns bónda Ásgeirssonar í Ögri. Páll var ríkur maður
og hafa frændur Solveigar getað unað þeim ráðahag. En
hvað sem þessu líður þá gengu þeir bræður fram hjá
Solveigu við skiftin. Fékk Einar Skarð í sinn hlut og
bjó þar næstu ár. Páll og Solveig voru fjórmenningar
að skyldleika. Vegna þess neitaði Magnús biskup Eyj-
ólfsson í Skálholti þeim um að giftast. Fengu þau tví-
vegis páfabréf til hjúskaparins og biskup varð að lokum
að láta undan. I þessu stappi hefir þó staðið nokkur ár
og þau hafa varla giftst fyr en um 1484. En eftir að
þau voru gift hafa skiftin eftir Ólöfu sennilega verið tek-
in upp að nýju og Solveig þá hlotið Skarð. Víst er að