Iðunn : nýr flokkur - 01.10.1925, Blaðsíða 55
IÐUNN
Brol úr feröasögu.
277
vera komnar heim. En svo gefur grísk kona sig fram í
tal þeirra og hún segir hið sama. Þegar sunnar dregur
rennur lestin meðfram Ontaríovatninu. Það er breitt eins
og úthaf og sér eigi til hinnar strandarinnar. Við norður-
bakka vatnsins liggur bærinn, móti sólu. Og aðaláhrifin
af Toronto er sólskin, sólskin bæði úti og inni. Eg man
ekki til að hafa komið í nokkra borg, sem jafnast á
við Toronto að því, hve öllum virðist líða þar vel. Hús-
in, hvort meira eða minna var í þau borið, fyrir eina
fjölskyldu. Garðar umhverfis og landrými nóg. Verslun-
argötur bæjarins hafa á sér stórborgarsnið, með ame-
ríkskum ljósaauglýsingum, en þeim er haldið út af fyrir
sig — »down-town«.
Toronto er aðal-háskólabær Canada. Stúdentar 6000.
Byggingar háskólans ná yfir stórt svæði og eru grasfletir
á milli. Ungir menn, léttklæddir, að leikjum hvervetna á
grasflötunum. Setur háskólinn mjög svip á bæinn.
Höfn Toronto er mikið mannvirki, gert á landauka út
í vatnið. Suðurundan liggur vatnið rennislétt og sólu roð-
ið. Meðfram eru breiðir vegir og svo er þar skemti-
staðurinn »Sunnyside«. Bæjarstjórn og hafnarnefnd bauð
til hádegisverðar úti við höfnina. Veitingar voru ekki
margbreyttar. Hvergi þar sem eg kom var óhóf í mat.
Menn koma áreiðanlega ekki saman til þess fyrst og
fremst að borða. En stemningin var ógleymanleg, þótt
eigi væri vín á borðum, þar frekar en annarsstaðar.
í Toronto dvaldi eg fram undir tvo sólarhringa. Eg
fann það, að því meir sem eg kyntist Canadabúum, þess
meir þótti mér til þeirra koma. Og þetta geðfelda í fari
þeirra fann eg ekki eins glögt hjá þeim fyrir sunnan
línuna. Stafar það líklega af því, að þar gafst mér eigi
jafn gott færi til að kynnast fólki. Canada byggir ung
þjóð, sjálfstæð og með sérstaka skapgerð, er landið hefir