Iðunn : nýr flokkur - 01.10.1925, Blaðsíða 48
270
Inga L. Lárusdóttir.
IÐUNN
En er leið á daginn dró fyrir sólu og tók að hvessa.
Þar með var þilfarssetum lokið þá vikuna. En bót í
máli að inni var rúmgott og vistlegt.
í hafi. Langt var frá því, að nú væri framundan heil
vika tilbreytingalausra daga. Ekki fyrir okkur I. C. W.
konurnar. í förinni voru konur, er sjálfkjörnar voru til
að vera leiðtogar, Dr. Ogilvie Gordon, 1. varaforseti
I. C. W. og Mrs. Morgan, forseti Englandsdeildarinnar.
Þegar manntal var tekið kom í ljós að hér voru 68
konur, frá 12 löndum, á leið til Washington. A hverj-
um degi voru fundir til að ræða málin, er biðu okkar
þar, segja fréttir frá deildunum o. s. frv. — Það
kvisaðist fljótlega meðal hinna farþeganna, að alt þetta
kvenfólk lokaði sig inni í dagstofunni milli miðdegis-
tes og miðdegisverðar. Karlmennirnir sögðust strax hafa
veitt því eftirtekt hve margt væri með »distingvish-
looking* kvenna og skipstjóri kom að máli við forstöðu-
konurnar og bað um að haldinn yrði fundur, sem allir
mættu hlýða á. Þetta var gert, en þá var beðið um
annan seinna. Var hann haldinn næstsíðasta daginn. Að
honum loknum kom einn farþega, roskinn maður, eflaust
auðugur, er átti heima vestur í landi og bauð Mrs. G.
Morgan að kosta för hennar og þeirra, er hún veldi
með sér, ef hún vildi ferðast þangað vestur og boða.
þar stefnu og tilgang I. C. W. Fór Mrs. Morgan og
fjórar konur aðrar þessa för að fundinum i Washing-
ton loknum.
A hverju kvöldi var af hálfu yfirmanna skipsins stofn-
að til skemtana: hljómleika, myndasýninga eða dansleika.
A hverjum degi lá fréttablaðið við hvern disk og með
því komu fregnir um síðustu viðburðina utan úr heimi.
Um það, er fram fór umhverfis varðist blaðið allra frétta.
Meðan þessu fór fram inni, hamaðist veður og vindur