Iðunn : nýr flokkur - 01.10.1925, Blaðsíða 15
IÐUNN
Elsta óöal á íslandi.
237
og ömmu, Daða og Arnfríðar, og erfði Skarð eftir þau.
Eggert var í uppvexti sínum í Bræðratungu, hjá Gísla
lögmanni Hákonarsyni og nam þar lög. Þegar hann var
um tvítugsaldur bað faðir hans honum til handa Krist-
ínar dóttur Gísla lögmanns. Ætla mætti að æskuástir
hefðu verið milli þeirra, en saga þessa bónorðs bendir
ekki til þess að svo hafi verið, og hún lýsir einkar vel
hugsunarhætti manna á þeim tímum í þeim sökum. Bón-
orðinu var vel tekið og skyldi brúðkaup þeirra vera
næsta ár. En þegar þeir feðgar voru komnir á leið austur
til brúðkaupsins, bar nýjan biðil að garði í Bræðatungu,
sjálfan Hólabiskupinn, Þorlák Skúlason. Hann bað Krist-
ínar. Lö.gmanni þótti vandast málið, og hvorttveggja ilt,
að vísa biskupi frá og að bregða giftumálunum við þá
feðga. Tók hann því það ráð, að hann reið á móti þeim
og fékk komið svo sínu máli, að Eggert hugði af ráðahagn-
um við Kristínu, en skyldi fá Valgerðar systur hennar í
hennar stað. Biskup fékk því Kristínar og sátu þeir
feðgar brúðkaup þeirra, en Eggert og Valgerður gift-
ust 1633. Bjuggu þau fyrst í Saurbæ á Rauðasandi, en
fluttu að Skarði um 1640 og bjuggu þar síðan. Eggert
var einhver auðugasti maður á landinu á sínum tíma, en
var talinn nokkuð aðsjáll. Valgerður kona hans var aftur
á móti mjög örlát. Er mælt að hann hafi sagt: »Gef þú,
Valgerður, en láttu mig ekki sjá það«. Eggert dó á
Skarði, 71 árs gamall, 1681. Valgerður lifði lengi eftir
hann og dó háöldruð 1702.
Synir Eggerts og Valgerðar dóu ungir en dætur
þeirra náðu fullorðins aldri. Ein þeirra, Arnfríður Egg-
ertsdóttir, giftist, 1675, Þorsteini syni síra Þórðar ]óns-
sonar í Hítardal. Bjuggu þau fyrst í Hjörsey á Mýrurn
og víðar, en fluttu að Skarði eftir lát Eggerts og bjuggu
þar síðan. Bogi á Staðarfelli lýsir Þorsteini svo að hann