Iðunn : nýr flokkur - 01.10.1925, Side 20
242
Einar H. Kvaran:
IÐUNN
í list og lífsskoðun E. H. Kv., sem valda því, að eg
(3; S. N.) tel hann ekki vel til þess fallinn að vera leið-
toga Islendinga í þeim efnum«. Ritgerðin hefir fengið
mikið lof í einu blaði, og þar er meðal annars tekið
fram, hvað hún sé »djúphugsuð«. Eg vík eitthvað að
þessari »djúpu hugsun« síðar.
Ef ritgerð S. N. hefði eingöngu verið um list mína
eða listarskort, þá hefði eg ekki skift mér neitt af henni.
Mér stendur á sama, þó að hann, eða einhver annar,
finni eitthvað að stíl mínum, fullyrði að enginn hvítur
maður geti sagt það, sem eg hefi sjálfur heyrt góða ís-
lendinga segja, líti svo á sem persónur mínar ættu að
vera alt öðru vísi en þær hafa orðið, eða ættu að hafa
sætt öðrum örlögum. Slíkurn skoðanamun og bolialegg-
ingum hafa allir rithöfundar átt að sæta. Eg minnist
þess ekki heldur að hafa lært neitt af neinum dómum
um bækur mínar, hvorki útlendum né innlendum. Þrá-
sinnis hefir það í einu útlenda blaðinu verið sérstaklega
lofað. sem fundið hefir verið að í öðru. En hérlend blöð
og tímarit hafa yfbleitt talað um bækur mínar af mestu
góðvild, án þess að þar hafi nokkuð komið fram, sem
væri neinn sérsfakur lærdómur fyrir mig. Eg kannast
við það hreinskilnislega, að eg er ekki auðmjúkari í
anda en það, að eg tel mig sjálfan hafa alveg eins
mikið vit á mínum bókum, eins og hvern annan, bæði
á því, sem þeim er áfátt, og því, sem þar hefir vel tek-
ist. Svo að það liggur mér í litlu rúmi, hvað menn segja.
Eg met líka að engu aðfinslur S. N., eða hvers sem
er annars, út af því, að lífsskoðunar minnar, eða þess
sem mér virðist dýpstar rætur hafa fest í sál minni,
kenni í skáldritum mínum. Eg veit það vel, að saga
verður fyrst og fremst að vera saga. Það held eg, að
mér hafi tekist, hvað sem S. N. segir. Eg held, að það