Iðunn : nýr flokkur - 01.10.1925, Side 62
284
Inga L. Lárusdóttir:
IÐUNN
að margir telja hættu stafa af. í Washington er t. d.
um þriðji hver maður litaðúr — coloured. Svertingjar
finna talsvert til sín. Það sýndi sig við eitt tækifæri
þessa daga, sem eg dvaldi í Washington. Móttöku-
nefndin hafði ætlað sér að sýna gestunum myndir úr
lífi þessara tveggja þjóðflokka. Fyrst var á dagskrá
dans Indíána, söngur þeirra o. s. frv., og leystu þeir
það af hendi. En síðari liður dagskrárinnar, þar sem
svertingjar voru leikendur, var aldrei framkvæmdur,
vegna þess, að þeir neituðu á síðustu stundu að
koma fram.
Ameríkumenn eiga meðal margs annars einn kjör-
grip, það er hin svokallaða Monroe-kenning. Samkvæmt
henni má engin íhlutun annara þjóða um hag eða stjórn
landsins líðast. Nú eru Ameríkumenn, svo sem kunnugt
er, eigi í þjóðabandalaginu. Um það leyti er fundur Al-
þjóðakvennaráðsins átfi að byrja, höfðu einhver, mjög
einhliða blöð, borið þær sakir á 1. C. W., að það væri
komið til landsins mestmegnis í því skyni, að knýja
Ameríku-menn inn í þjóðabandalagið. Varð úr þessu
kurr nokkur, er þó leiðréttist bráðlega. Því þótt I. C.
W. sé Þjóðabandalaginu hlynt og vinni mikið með því,
hafði það alls ekki ætlað sér að fara að brjóta í bága
við Monroe-kenninguna. Að þessu urðu þó þau óþæg-
indi að »dætur stjórnarbyltingarinnar«, sem gefið höfðu
loforð fyrir fundarstað í húsi sínu, tóku það loforð
aftur, og varð fundurinn að fara fram í langt um
óhentugri og alt of stórum sal.
Að öðru leyti voru viðtökurnar ágætar, Forstöðukon-
urnar, sem, eins og nærri má geta, voru mörgum önn-
um hlaðnar, gerðu alt sem þær gátu til að sýna gest-
unum alúð, og dvölin verður okkur öllum ógleymanleg,
sérstaklega fyrir þá velvild og innilegu gestrisni, er