Iðunn : nýr flokkur - 01.10.1928, Page 8

Iðunn : nýr flokkur - 01.10.1928, Page 8
302 Roald Amundsen. IÐUNN og gerði manninn að dýrlingi fyrir kraftaverkið. Síðar hafa aðrir farið erfiðari og lengri leið yfir Grænland þvert, til dæmis Koch, ofurstinn danski, sem hafði til fylgdar sér Vigfús Grænlandsfara. En þeim ferðum hefir hvergi nærri verið jafn mikill gaumur gefinn og ferð Nansens, því hún var sú fyrsta. Ferðasaga Nansens af þessari för, »Paa Ski over Grönland«, varð einskonar kenslubók allra heimskautafara í því, hvernig þeir ættu að búa sig út og hvernig hátta skyldi ferðalögum á hjarnbreiðunum miklu. Blöðin fluttu ítarlegar lýsingar af ferðinni og bókin seldist mikið. En það er óhætt að segja, að ekki hafi frásagnirnar af þessu ferðalagi grafist jafn djúpt inn í lund nokkurs manns og fjórtán ára drengs eins í Osló. Þegar hann dó í sumar, mátti finna meðal bóka hans safn af öllum blaðafrjettum um skíðaförina yfir Grænland 1888. Og bók Nansens vitanlega. Þetta var eigi ástæðu- laust, því þessar blaðafréttir og bókin höfðu ráðið lífs- ferli mannsins, sem í hlut átti. Lestur þeirra hafði heillað hann svo, að hann varð að gerast heimskautakönnuður sjálfur og ekkert annað. Drengurinn var Roald Amundsen. Hann var fæddur í Borgum við Sarpsborg, sem Borgarþing hin fornu eru kend við, 16. júlí 1872, en fluttist með foreldrum sínum til Osló í bernsku. Eigi er þess getið, að hann hafi á barnsaldri verið öðrum á því reki ólíkur, nema hvað hugur hans hneigðist þegar í stað til æfintýraferða norður í íshaf. Skömmu eftir að hann var orðinn læs, náði hann í frásögn af hinni ömur- legu tilraun Franklins til þess að komast sjóveg norðan Ameríku, frá Atlantshafi til Kyrrahafs. Til þeirrar farar hafði verið vandað svo mjög, að síðan hefir aldrei verið gerð úr garði eins kostnaðarsöm og mannmörg heim-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Iðunn : nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.