Iðunn : nýr flokkur - 01.10.1928, Side 36
330
Um þrifnað á íslandi.
IDUNN
hrúga einni hæð ofan á aðra, eins og tílt er í jarðnæðis-
knöppum stórborgum erlendis. Ennfremur er gnægð af
raforku, jarðhita, byggingarefni og vinnukrafti til í landi
voru, auk annara kosta, og þarf í engu til að spara, ef
landinu væri stjórnað með öruggri stjórnarfarslegri skygni
og takti þeim, sem sönnum stjórnmálamönnum er með-
fæddur, en á sér hvergi form nema í framkvæmdum, —
og sízt í bókum. (Því eiga þessar ritgerðir mínar ekkert
erindi til stjórnmálamanna, heldur eru þær aðeins hug-
vekjur handa alþýðu, en svo fremi að alþýðu skiljist nú
nokkur stjórnarfarsleg höfuðatriði, hefir hún öll skilyrði
til þess að skapa pólitískar náðargáfur meðal sín.)
Að öllu athuguðu hygg ég sem sagt, að hugmyndir
mínar frá 1926 (Ferðasaga að austan) þarfnist nokk-
urrar endurskoðunar. Ég var þi þeirrar skoðunar, að í
stað hinna óboðlegu tómthúsræfla, sem kauostaða-alþýða
hýrist í, ætti að byggja margbýlishús með sameiginlegum
eldhúsum. Ég sagði, að það ætti að hafa einn stóran
pott og eina stóra þvöru, eitt geysimikið eldhús og
stromp upp úr þakinu. Á krepputímum og hallæris, eins
og t. d. í síðasta stríði, hafa menn ekki komist hjá því
að sjá, hver fjársparnaður var í því að stofna almenn-
ingseldhús. En sannleikurinn er sá, að allar umbóta-
tillögur, sem byggja höfuðatriði sín á sparnaði, eru tóm
vitleysa. Á þessari jörð, sem vér Iifum á, þarf nefnilega
ekkert að spara. Guð hefir ekki aðeins gefið oss alt,
heldur einnig gnægðir alls. Hið alleinasta, sem oss vantar
á þessari jörð, er fullkomnara stjórnarfar.
Sameiginlegt eldhús þýðir í raun og veru ekki annað
en matsöluhús og er full nauðsyn á að slík finnist hvar-
vetna þar, sem margbýlt er, en það ber samt ekki að
gera ráð fyrir nokkurri íbúð án eldhúss. Svo er líf
manna bezt, jafnvel í hversdagslegustu efnum, að jöfnum