Kirkjuritið - 01.03.1938, Blaðsíða 43
Kirkjuritið.
S j ómannadagurinn.
121
„Um hana hringast hafblámans svið.
Hánorðurstjöldin glitra að baki.
Svo hátt hún sig ber, undir heiðu þaki,
i hrannadunum og straumanið.
Föðmuð af ylstraum á eina hlið,
á aðra af sæfrerans harðleikna taki,
áttvís á tvennar álfustrendur,
einbýl, jafnvíg á báðar hendur,
situr hún liafsins höfuðmið“.
Islenzki sæfari! Þú, sem stýrir fari þínu um þessi
„hafsins höfuðmið“, og átt þar ef til vill mestalla lífs-
braut þína, gættu „lambanna“ — varðveittu, í Guðs
nafni, sjálfan þig, niðja þína, þjóðina þína, landið þitt,
- vertu græðari, vertu liirðir, — þegar þú ert heima í
ástvinaskjólinu, þegar þú ert á yztu miðum, og þegar þú
gistir fjarlæg lönd. Glataðu aldrei lönguninni að geta
sagt líkt og sjómaðurinn við Tíberíasvatnið: Herra, þú
þekkir alt, og skilur alt, þú veizt, að ég elska þig!
Friðrik A. Friðriksson.
NÝJA TESTAMENTIÐ Á FÆREYSKU.
Séra Jakob Dahl prófastur Færeyinga hefir iokið því þrek-
'arki að ])ýða Nýja testamentið á færeysku, og er þýðingin ný-
komin út i vandaSri útgáfu. KirkjuritiS samfagnar Færeyingum
J’tir þessum merkisatburSi í kristnisögu þeirra og mun innan
skamms segja nánar frá starfi Dahls prófasts.