Kirkjuritið - 01.01.1942, Blaðsíða 50
Janúar.
Vinarkveðjur til biskups landsins.
Biskupi landsins liafa borist nýlega vinarkveðjur frá
útlöndum.
1. Forseti Þjóðræknisfélags íslendinga í Vesturheinii,
dr. Riehard Beck, þakkar biskupi jólakveðju hans, sem
hann talaði á hljómplötu. En hljómplatan var leikin í l)áð-
um íslenzku kirkjunum í Winnipeg á jólunum og henni
útvarpað skömmu síðar. Þessi kveðja biskups til Vestur-
Islendinga var einnig prentuð í báðum vikublöðunum
þeirra. „Hefir bún áreiðanlega“, segir forsetinn, „vakið
almennan fögnuð meðal Islendinga í landi bér og drjúg-
um orðið til þess að stvrkja bræðraböndin milli vor og
beimaþjóðarinnar“.
2. Erkibiskup Kantaraborgar þakkar í nafni kirkju Eng-
lands og sínu fyrir þá vinsemd, sem ensku prestarnir hafi
notið hjá íslenzku kirkjunni og þá einkum það, að þeir
hafi fengið að halda guðsþjónustur í Dómkirkjunni í
Reykjavík og fleiri kirkjum. Biður erkibiskup blessunar
Guðs yfir kirkju íslands og alt starf hennar.
3. Þriðja kveðjan er simskeyti frá erkibiskupi Svía, á
þessa leið:
„Biskupar Svíaríkis, saman komnir á ársfundi sínum,
senda brqður sínum, hinum islenzka, innilega friðar-
kveðju. Guð er vort b.æli og vor styrkur.
Eidem“.
Biskup vor sendi þegar um hæl svarskeyti: „Þakka
bróðúrkveðju. Guð blessi kirkju Sviaríkis. í Jjögn og von
skal hreysti yðar vera (In silentio et in spe erit fortitudo
vestra).
I
SÉRA PÁLL HJALTALÍN JÓNSSON
prófastur frá Raufarhöfn andaðist hér í bænum 12. marz. Hans
verður nónar getið síSar liér í ritinu.