Kirkjuritið - 01.01.1942, Side 56
50
Aðalfundur Prestafélags Islands.
Janúar.
fundinum og frá er skýrt í nóvemberhefti Kirkjuritsins þ. á.
Ályktun Prestafélagsins er á þessa leið:
„Fundurinn mælir meS frumvarpi þvi um kirkjuþing, er lá
fyrir síðasta Alþingi, með tveim breytingum:
1. Kosnir verði i hverju hinna 7 kjördæma 2 prestar og einn
leikmaður.
2. Samræmt verði vald kirkjuþings og kirkjuráðs þannig, að
það vald, sem nú er í höndum kirkjuráðs eins, leggist
undir kirkjuþing, enda kjósi kirkjuþing kirkjuráð, er verði
framkvæmdastjórn þess.
Altarissakra-
mentið.
Veiting
prestakalla.
Fundurinn felur stjórn Prestafélagsins ásamt 2 fulltrúum, sem
fundurinn kýs, að semja frumvarp um kirkjuþing, er iagt verði
fyrir næsta reglulegt Alþingi".
Þá er tillaga þessi hafði verið samþykt, voru kosnir til að
vinna með prestafélagsstjórninni að málinu: Þorsteinn Briem
prófastur og Sveinbjörn Högnason prófastur.
Að kvöldi fyrra fundardags flutti próf. Magnús
Jónsson fróðlegt og gott erindi um altaris-
sakramentið í Háskólakapellunni. Fóru síðan
fram nokkurar umræður um málið. Að þeim umræðum loknum
annaðist Þorsteinn Briem prófastur kvöldbænir. Morgunguðs-
þjónustu síðari fundardaginn annaðist Sigurgeir biskup, og flutti
prestum hvetjandi ávarp.
Samkvæmt ályktun síðasta aðalfundar hafði
Prestafélagsstjórnin athugað prestskosningar-
lögin. Lagði formaður fram tiilögur þær, er
stjórnin hafði til bráðabirgða komið sér saman um. Fóru siðan
fram stuttar, en snarpar umræður um málið, og var það siðan
tekið út af dagskrá að þessu sinni. Er hér um vandasamt og
margþætt mál að ræða, sem þarfnast ýtarlegrar rannsóknar áð-
ur en breytingar eru gerðar á því skipulagi, sem nú er, og' ó-
neitanlega hefir sína galla.
... , . . Guðbrandur Björnsson prófastur vakti athygli
a þvi, að a næsta ari væn 400 ara afmæh
Guðbrands biskups Þorlákssonar, og væri skylt að minnast þessa
liöfuðprests íslenzku þjóðarinnar svo, að honum væri samboðið.
Fundarmenn studdu allir mál frummælanda, og var að um-
ræðum loknum samþykt, samkv. uppástungu Sigurgeirs biskups,
að fela kirkjuráði forgöngu um framkvæmdir í þessu máli.
Ýms mál Rædd voru og afgreidd ýms smærri mál, sem
vakið var máls á, og kveðjur voru sendar dr.
Jóni Helgasyni biskupi og ennfremur frú Elísabetu Jónsdóttur,