Kirkjuritið - 01.12.1944, Blaðsíða 17
Kirkjuritið.
Æfintýrið um Nonna.
255
verið gert, finnst mér þó að vísu kenna nokkurs tóm-
lætis gagnvart Jóni Sveinssyni.
Mér finnst bókum lians varla nægilegur gaumur gef-
inn hér heima, í því landi og með þeirri þjóð, sem þær
viðfræga og vegsama. Ég veit, að þær eru vinsælar, cn
þær skipa samt ekki það rúm í vitund alls þorra manna,
sem þeim áreiðanlega her að maklegleikum. Það er eins
og vér liöfum enn ekki fyllilega áttað oss á, hvílikt ó-
segjanlegt verðmæti vér eigum í Nonnabókunum til
uppéídislegra, siðgœðis- og trúaráhrifa.
Um Jón Sveinsson sjálfan og verk hans hefir ekkert
verið ritað á vora tungu, er sé i samræmi við frægð
hans og orðstír i framandi löndum. Og undarlega sjald-
an er lians minnzt opinherlega. Hvorki hlöð né útvarp
gátu hans t. d. í fyrra haust, er hann varð hálf-níræður.
Ctlendir menntamenn liafa skrifað um hann merkar
hækur og jafnvel doktorsritgerðir. Svo stórvægilega þýð-
ingu telja þeir, að verk lians hafi haft.
Og ég' er líka viss um, að vér, landar lians, eigum eft-
ir að þekkja liann betur en nú er og skipa honum skör-
uglegar á hekk með ágætustu sonum þjóðarinnar fyrr
og síðar.
Óslitið hefir liann um tugi ára unnið að sæmd íslands
og aukið hróður þess með hókum sínum og annari
kynningu, j)ví að fyrirlestrar hans um íslenzk efni viða
um heim skipta þúsundum. Er j)að frægt, þegar Jón
Sveinsson fór áttræður að aldri kringum hnöttinn í
tveggja ára ferðalag', og' átti j)á lengri og' skemmri dvöl
og flutti erindi i mörgum stærstu borgum Vestur- og
Austur-álfu.
Má því ýkjulaust segja, að milljónir manna úti í lönd-
um j)ekki ísland og' heri til j)ess samúð og velvildarhng
aðeins vegna Nonna bókanna og höfundar þeirra. Og
engum ætti að dyljast, hvilíkur ávinningur það er oss
að hafa átt annan eins fulltrúa til svo áhrifaríkrar og
stórkostlegrar kynningar og einmitt Jón Sveinsson,